Starfsfólk ráðhússins kvaddi Kjartan Má

Á dögunum hélt starfsfólk ráðhúss Reykjanesbæjar kveðjuhóf fyrir Kjartan Má Kjartansson fráfarandi bæjarstjóra. Síðasti starfsdagur Kjartans var 2. júní en hann hafði gegnt embætti bæjarstjóra frá haustinu 2014, eða í tæp 12 ár.

Í kveðjuhófinu voru rifjuð upp viðburðarík ár og Kjartani þakkað samstarfið og framlag til uppbyggingar og þróunar Reykjanesbæjar á þessum tíma.

Í ávarpi sínu sagði Kjartan að árin hefðu verið viðburðarík og málin sem komu á hans fjölbreytt og oftast skemmtileg. Hann sagðist stoltur af þeim árangri sem náðst hefði og þeim stað sem sveitarfélagið stæði á í dag. Þá þakkaði hann starfsfólki Reykjanesbæjar fyrir gott samstarf og mikilvægt framlag á oft krefjandi tímum. Að lokum sagðist hann hverfa frá störfum með stolti nú þegar nýir aðilar tækju við keflinu.

Reykjanesbær þakkar Kjartani Má fyrir farsælt samstarf og mikilvægt framlag til sveitarfélagsins og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.