- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Við strandlengjuna í Innri Njarðvík stendur sérstakur stígvélagarður sem var skapaður af leikskólanum Holti. Í leikskólanum er lögð áhersla á listræna tjáningu og fjölbreytta myndsköpun, þar sem sköpunargleði barna fær að njóta sín.
Upphaf að garðinum kom fram árið 2010 þegar móðir barns í leikskólanum kom með þá hugmynd að gömul stígvél yrðu sett upp við fjöruborðið og skreytt listaverkum eftir börnin.
"Hugmyndin að stígvélagarðinum kom til þegar ég sem oftar stóð úti á palli í þögninni og sorginni sem fylgdi í kjölfar andlát litlu dóttur minnar, Auðbjörgu Jönu en hún var 15 mánaða. Skyndilega berst til mín hlátur og skvaldur frá glöðum börnum af leikskólanum Holti ásamt leikskólakennurum þeirra á leið í fjörunna. Hláturinn og gleðin sem ég skynjaði þarna í þögninni var eins og léttur andavari stryki mér um kinn en einnig sorgin yfir að aldrei fengi hún tækifæri að tipla um í fjörunni í litríkum stígvélum rétt eins og önnur lítil líf sem horfin eru á braut.
Það var þá sem ég áttaði mig að á að ég gæti staðsett dóttur mína í tíma og rúmi og samhliða þeirri hugsun sá ég fyrir mér að það væri yndislegt að sjá lítil stígvél á steingarðinum, rétt eins og það væri börn við leik og undri þess sem felst í að upplifa fjöru og taka fetið til framtíðar en einnig til minningar um þau börn sem fá þess ekki notið."
Að verkinu komu Kristín Helgadóttir og Elín B. Einarsdóttir, þáverandi stjórnendur leikskólans Holts. Þær tóku einstaklega vel í hugmyndina og sáu til þess að hún yrði að veruleika. Ingibjörg Guðmundsdóttir, þáverandi verkefnastjóri listasmiðju, sá um famkvæmd verkefnisins, safnaði stígvélum frá foreldrum og stýrði listsköpun barnanna. Starfsmenn Reykjanesbæjar festu síðan stígvélin við strandlengjuna. Öllum þeim sem komu að verkefninu og lögðu sitt af mörkum voru færðar sérstakar þakkir.
Stígvélagarðurinn hefur nú orðið vinsæll viðkomustaður þar sem litrík verk barnanna gleðja jafnt íbúa bæjarins sem gesti. Garðurinn ber jafnframt þess merki að virðing sé borin fyrir börnum og verkum þeirra. Það er því einlæg ósk leikskólans að garðurinn fái að standa áfram til frambúðar og tekur leikskólinn Holt enn á móti notuðum stígvélum til að halda þessari fallegu hugmynd lifandi.
Við hvetjum fólk til að taka göngutúr meðfram strandlengjunni í Innri Njarðvík í sumar, leggja við hlustir og heyra hlátur og gleði barnanna.

Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)