Stjórn Eftirlaunasjóðs Reykjanesbæjar kveður Ellert Eiríksson

Á aðalfundi Eftirlaunasjóðs Reykjanesbæjar, sem fram fór þ. 16. apríl sl. var Ellerti Eiríkssyni, fyrrverandi bæjarstjóra, þökkuð góð störf í þágu sjóðsins.

Ellert sat í stjórn sjóðsins frá 26. júlí 1990 til 22. júlí 2014 eða í 24 ár, þar af 12 ár sem formaður. Í samþykktum sjóðsins er gert ráð fyrir að bæjarstjóri á hverjum tíma skipi formannssætið.

Á meðfylgjandi mynd er Ellert ásamt núverandi formanni sjóðsins, Kjartani M. Kjartanssyni, bæjarstjóra.