- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Reykjanesbær auglýsir eftir umsóknum um styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum þar sem fram fer menningar-, íþrótta-, tómstunda- og/eða mannúðarstarfsemi sem er rekin í almannaþágu eða þágu æskulýðs.
Heimild sveitarfélaga til undanþágu frá greiðslu fasteignaskatts er að finna í 2. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
Styrkur til greiðslu fasteignaskatts getur að hámarki numið upphæð álagðs fasteignaskatts fyrir árið 2021. Styrkur til greiðslu fasteignaskatts af lóð reiknast í sama hlutfalli og af húsnæði. Allar nánari upplýsingar er að finna í reglum sveitarfélagsins um styrki til greiðslu fasteignaskatts.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2021. Með umsókn skal fylgja ársreikningur 2020, lög félagsins og stutt greinargerð um starfsemina. Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið skjaladeild@reykjanesbaer.is merktum „Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts.“
Með því að smella á þennan tengil opnast reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös