Styrkir fyrir ungt fólk

Kynning á styrkjum fyrir ungt fólk til að framkvæma verkefni sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið.  Ef þú ert að vinna með ungu fólki eða ert sjálf/ur/t á aldrinum 18-30 ára, komdu þá á kynninguna Vertu breytingin! um styrki fyrir ungt fólk til að framkvæma verkefni sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið fimmtudaginn 20. janúar kl. 15:00! ➡️ https://www.facebook.com/events/894393367889265

Skráðu þig hér

Styrkirnir eru fyrir ungt fólk á aldrinum 18-30 sem láta gott af sér leiða í sínu nærsamfélagi eða til einhvers ákveðins markhóps.

Það þarf 5 ungmenni (18-30 ára) til að mynda hóp sem sér um framkvæmd verkefnisins og það er hægt að fá styrk fyrir 2-12 mánaða verkefni. Styrkupphæð er á bilinu €1000-6000 (150.000-900.000 m.v. núverandi gengi).

Næsti umsóknarfrestur er 23. febrúar næstkomandi kl. 10:00

Ætlunin er að útskýra hugmyndafræðina á bakvið styrkina, skoða skráningarferlið og umsóknarformið auk þess að svara spurningum. Tilvalið tækifæri til að skoða hvort að hugmyndin þín eða þeirra ungmenna sem þú starfar með geti ekki fengið styrk.

  • Dæmi um verkefni gæti verið:
  • Umhverfisvernd
  • Taka á samfélagslegum vanda
  • Hvetja til heilbrigðs lífernis
  • Heimildamynd
  • Gjörningar
  • List
  • Vinnustofur
  • Vinnusmiðjur
  • Vitundarvakning
  • Herferð
  • Matarkvöld
  • Regluleg viðburðakvöld á vegum nemendafélaga
  • Skatepark
  • Podcast
  • Og margt fleira!

Kynntu þér málið: https://www.erasmusplus.is/taekifaeri/european-solidarity-corps/samfelagsverkefni/

Ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum um Erasmus+ og European Solidarity Corps áætlanirnar þá er góð hugmynd að skrá sig hér:
https://rannis.us4.list-manage.com/subscribe?u=b4c67d6c6d0cc896cdaaa4248&id=6c7daa53e9