Suðurnes til framtíðar

Reykjanesbær
Reykjanesbær

Til þess að stefna til framtíðar skal skoða nútíð og fortíð.

Sveitarfélögin á Suðurnesjum og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa í sameiningu gert samning við Hagstofu Íslands um samfélagsgreiningu á Suðurnesjum. Samningurinn á sér stoð í aðgerðaáætlun um eflingu þjónustu ríkisins á Suðurnesjum sem kom út í maí á þessu ári.

Reykjanesbær hefur verið í forsvari fyrir þessa vinnu og hafa Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Ólafur Hjálmarsson hagstofustjóri nú skrifað undir samninginn. 

Markmið samningsins er að geta greint samfélagsleg áhrif fólksfjölgunar á vaxtasvæði Suðurnesja. Með því er stefnumótunarvinna svæðisins gerð skilvirkari, markvissari og heildstæðari og skilningur á samfélagsþróun Suðurnesja aukinn. Upplýsingarnar gefa jafnframt tækifæri til þess að skoða áhrif og meta afleiðingar íbúaþróunar á svæðinu á samfélagið í heild.

Verkefnið snýr að greiningu á samfélagsþróun Suðurnesja tíu ár aftur í tímann. Greiningin verður gerð einu sinni á ári frá 2020 til 2024, samtals fimm sinnum. Greiningin snýr að víðtækri íbúagreiningu út frá uppruna, fjölskyldugerð og -stærð, tekjutegundum, menntunarstöðu og búsetutíma á svæðinu. Allar breytur verða greindar út aldri, kyni, ríkisfangi og uppruna. 

Annars vegar verður gerð greining fyrir Suðurnesin í heild, þ.e. fyrir sveitarfélögin Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Voga og Grindavík saman og hins vegar fyrir hvert sveitarfélag sérstaklega, þar sem því verður við komið út frá gagnsæi greiningarinnar miðað við íbúafjölda. 

Gert er ráð fyrir fyrstu gögnum strax í byrjun desember og verður sveitarfélögunum því ekkert að vanbúnaði að hefja frekari greiningarvinnu og skerpa á stefnumótun.

Reykjanesbær fagnar þessari samvinnu við Hagstofu sérstaklega og sendir bestu þakkir til Hagstofunnar fyrir góða samvinnu við undirbúning verkefnisins.