- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Fimmtudagskvöldið 26.nóvember kl. 19:30 verður hið árlega Bókakonfekt Bókasafnsins í Ráðhúsinu, Tjarnargötu 12.
Rithöfundarnir Jón Kalman Stefánsson, Árelía Eydís Guðmundsdóttir og Ásmundur Friðriksson lesa upp úr nýjustu bókum sínum. Þau tengjast öll Suðurnesjum á einn eða annan hátt.
Eitthvað á stærð við alheiminn eftir Jón Kalman Stefánsson er framhald ættarsögunnar Fiskarnir hafa enga fætur en sögusvið bókanna teygist frá Norðfirði forðum til Keflavíkur nútímans.
Tapað - fundið er fyrsta skáldsaga Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur. Bókin fjallar um lögfræðinginn Höllu Bryndísi sem, á ferð sinni til London, fær ranga ferðatösku við lendingu. Hvað gerir kona með ókunnugan fataskáp þegar mikið liggur við?
Hrekkjalómafélagið: prakkarastrik og púðurkerlingar er 20 ára saga Hrekkjalómafélagsins í Vestmannaeyjum sem Ásmundur Friðriksson rekur. Í bókinni er undirbúningi hrekkjanna lýst, hrekkjunum sjálfum, viðbrögðum og afleiðingum þeirra.
Gestum er boðið upp á jólastemningu með lifandi tónlist frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Boðið verður upp á kaffi og konfekt. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Dagskráin er styrkt af Menningarráði Suðurnesja.

Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)