- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Frístundaheimili grunnskólanna, fyrir tilvonandi 1. bekkinga (börn fædd 2018), eru opin frá 9. ágúst til skólasetningar. Markmiðin með þessari opnun eru m.a. að brúa bilið milli leik- og grunnskólagöngu nemenda, að aðlögun nýrra leikskólabarna geti hafist sem fyrst að hausti og að aðlaga tilvonandi 1. bekkinga í grunnskólann sinn.
Skráning hefst 15. apríl og fer fram í gegnum www.mittreykjanes.is og er skráning fyrir þetta tímabil ótengd skráningu fyrir frístundaheimilin eftir að skólastarf hefst. Gert er ráð fyrir því að foreldrar séu búnir að skrá börnin sín fyrir 10. maí.
Opnunartíminn verður frá 9:00 – 15:00. Börnin fá hádegismat og síðdegisnesti.
*15. ágúst verða frístundaheimilin opin frá 10:00 – 15:00 þar sem starfsmannafundur er í upphafi dags.
Athugið: Foreldrar með systkini á leikskólum eða hjá dagforeldrum eru beðnir um að setja inn upplýsingar um systkin vegna fjölskylduafsláttar í reitinn annað.
Gjaldskrá fyrir tímabilið 9. – 22. ágúst 2024
Frístund í 10 daga frá kl. 9:00 – 15:00 - 22.933 kr.
Fjölskylduafsláttur (eingöngu af tímagjaldi – 15.363 kr) gildir milli skólastiga, þ.e. dagforeldra, leikskóla og frístundaskóla.
Gjaldskrá fyrir tímabilið 9. – 21. ágúst 2024
Frístund í 9 daga frá kl. 9:00 – 15:00 - 20.614 kr
Fjölskylduafsláttur (eingöngu af tímagjaldi – 13.801 kr) gildir milli skólastiga, þ.e. dagforeldra, leikskóla og frístundaskóla.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)