- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Vinnuhópur hjá Reykjanesbæ er að skoða með hvaða hætti bæjarfélagið geti boðið ungu skólafólki vinnu í sumar. Í fyrra var ungu atvinnulausu fólki boðin vinna í 4 vikur við ýmis umhverfisverkefni hjá bæjarfélaginu. Ragnar Örn Pétursson íþróttafulltrúi sem er einn þeirra sem situr í vinnuhópnum segir að verið sé að skoða tvennt. Annars vegar vinnu fyrir ungt skólafólk sem ekki á möguleika á að skrá sig á atvinnuleysisbætur þegar skóla lýkur þar sem réttur til bóta er enginn. Hins vegar er bæjarfélagið í samstarfi með Vinnumálastofnun um úrræði fyrir ungt fólk 18-24 ára sem eru á atvinnuleysisbótum.
Rúmlega sex hundruð ungmenni á aldrinum 17-24 ára búsett í Reykjanesbæ eru í framhaldsskólum, flestir í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Um 250 ungmenni á aldrinum 18-24 ára og búsett í Reykjanesbæ eru skráð atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun.
Ragnar Örn vonast til þess að vinnuhópurinn ljúki störfum í næstu viku og þá muni hann leggja fram tillögur til bæjarráðs. Því má bæta við að Félagsmálaráðuneytið hefur ákveðið að leggja fram 250 milljónir króna í sjóð sem sveitarfélög og ríkisstofnanir geti sótt í vegna atvinnuverkefna fyrir ungt skólafólk. Ráðuneytið mun í næstu viku kynna reglur sjóðsins.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)