Sundmiðstöðin verður opin í samkomubanni

Gaman í sundlaugarpartý á Ljósanótt 2018. Ljósmynd: Víkurfréttir
Gaman í sundlaugarpartý á Ljósanótt 2018. Ljósmynd: Víkurfréttir

Sundmiðstöðin verður opin í samkomubanni. Eimbað, kaldur pottur og rennibraut verður lokað.

Farið verður að tilmælum almannavarna um fjöldatakmarkanir en fækka þarf skápum sem eru í notkun vegna fjarlægðarreglna.

Sundleikfimi eldri borgara verður felld niður.

Aukin þrif verða í Sundmiðstöðinni,starfsfólk laugarinnar mun spritta og þrífa snertifleti reglulega, borð, skápa, sápuskammtar og salerni og þess háttar.
Þá verða gestir beðnir að passa upp á fjarlægðartilmæli sóttvarnarlæknis um tveggja metra bil sín á milli í búningsklefum, sturtum og pottum.

Ákvarðanir varðandi opnun sundlaugarinnar verða endurskoðaðar eftir því sem fram líður og metnar eftir því hvernig til tekst út frá sóttvarnarsjónarmiðum.