Svanhvít Guðmundsdóttir lætur af störfum

Svanhvít eða Svana, lét af störfum í gær eftir farsælt 23 ára starf sem skólaritari í Njarðvíkurskóla. Var Svönu haldið kveðjuhóf þar sem Árni Sigfússon bæjarstjóri þakkaði henni fyrir vel unnin störf í þágu bæjarbúa öll þessi ár. Ásgerður skólastjóri Njarðvíkurskóla ásamt samstarfsfólki þakkaði Svönu einnig samstarfið en hún var frumkvöðull í notkun á Mentor í grunnskólum á landsvísu.  Einnig var boðið uppá veitingar að hætti hússins.
Við þökkum Svönu samstarfið og óskum henni velfarnaðar í því sem hún tekur sér fyrir hendur á þessum tímamótum.