- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Friðarliljur eru hópur syngjandi og spilandi kvenna sem kemur fram víðs vegar á Suðurnesjum og skemmtir sér og öðrum heldri borgurum með söng og hljóðfæraleik. Hópur þessi hefur verið starfandi í tæp sjö ár og var upphaflega stofnaður undir merkjum Grindavíkurdeildar Rauða kross Íslands auk þess sem hann kemur fram á eigin vegum.
Í fjögur ár hafa Friðarliljurnar mætt mánaðarlega í Reykjaneshöllina til að spila og syngja með fólkinu sem þar gengur sér til heilsubótar. Það var glatt á hjalla í vikunni þegar bæjarstjórinn leit þar við til að þakka Friðarliljunum fyrir þeirra óeigingjarna og skemmtilega framlag til menningarlífs í bænum og það var ekki að sökum að spyrja, stúlkurnar brustu í söng og fluttu með stakri prýði lögin Kóngur einn dag og Liljan fyrir bæjarstjórann sem eins og flestir viðstaddir tóku vel undir. Ungum viðstöddum manni varð á orði að þarna væri bara heill heimur sem menn vissu ekkert um. Þar hitti hann naglann á höfuðið því það er svo margt jákvætt og skemmtilegt um að vera í okkar góða bæ.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)