Sýning Kolbeins í Suðsuðvestur framlengd til sunnudags

Kolbeinn Hugi sýnir í Suðsuðvestur galleríi
Kolbeinn Hugi sýnir í Suðsuðvestur galleríi

Sýning Kolbeins Huga Ellipsepelepsy II „The prodrome" í Suðsuðvestur hefur verið framlengd til sunnudagsins 20 júní.

Vídeóinnsetning Kolbeins er kojufyllerí fyrir augu og eyru þar sem tilraun er gerð til að skapa abstrakt áreiti, jafnvel ofbeldi með litum og hljóðum ef það er þá hægt.

Suðsuðvestur er á Hafnargötu 22 í Keflavík þar er opið um helgar frá kl.14 - kl.17, eftir samkomulagi í síma 662 8785 (Inga)

OPIÐ 17 JÚNÍ