- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Hver má kjósa?
Íslenskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag. Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðslu og geta því ekki kosið.
Kosning utan kjörfundar
Ef kjósendur geta ekki kosið á kjördag er hægt að kjósa utan kjörfundar, hjá sýslumönnum eða erlendis.
Hvar kýs ég?
Sá staður sem kosið er á kallast kjörstaður. Kjósandi kýs á kjörstað í því sveitarfélagi sem hann er á kjörskrá í. Kjörskrá verður birt í 24. júlí og þá verður hægt að fletta upp hvar kjósandi á að kjósa. Kjörstaðir eru almennt opnir frá klukkan 9 að morgni til klukkan 22 að kvöldi kjördags.
Athugið að í ár verða 3 kjörstaðir í Reykjanesbæ. Skipting kjósenda eftir kjörstöðum er eftirfarandi:
Hvernig kýs ég?
Aðstoð við kosningu
Allir kjósendur geta fengið aðstoð við að kjósa og þurfa ekki að gefa neinar ástæður fyrir því. Kjósandi getur komið með eigin aðstoðarmann eða fengið aðstoð frá starfsfólki kosninga.
Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í FS í stofu 221. Netfang hennar er yfirkjorstjorn@reykjanesbaer.is og símanúmer 894-6700.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)