- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Þórdís Ósk Helgadóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns Súlunnar; verkefnastofu menningar-, atvinnu- og markaðsmála Reykjanesbæjar.
Þórdís er með háskólagráðu í innanhússhönnun, viðskipta- og markaðsfræðum og meistaragráðu í verkefnastjórnun frá HÍ. Hún hefur marktæka reynslu af verkefnastjórnun eftir margvísleg störf hjá Syrusson hönnunarhúsi, ferðaþjónustu hjá Nordic Visitor auk verkefna sem hún hefur unnið sjálfstætt sem verktaki. Í störfum sínum hjá Syrusson öðlaðist Þórdís einnig reynslu af samstarfi við sjálfstætt starfandi hönnuði og frumkvöðla sem unnið hafa að nýsköpun og verið þátttakendur í sýningarhaldi Syrusson s.s. í tengslum við HönnunarMars í Reykjavík.
Þórdís Ósk mun hefja störf nú á haustmánuðum og bjóðum við hana velkomna til starfa.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)