Þrettándagleði og álfabrenna

Mynd af þrettándabrennu.
Mynd af þrettándabrennu.

Árleg þrettándagleði í Reykjanesbæ verður haldin 6. janúar við Ægisgötu.

Dagskrá hefst kl. 18.00 með skrúðgöngu frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði.

Álfabrenna, tónlist, söngur, álfakóngur og drottning, púkar, Grýla, Leppalúði og jólasveinar. Heitt kakó í boði Reykjanesbæjar.
Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátarnir, Björgunarsveitin Suðurnes, Léttsveit og Trommusveit Tónlistarskólans og tröllastelpan Fjóla taka þátt í dagskránni.

Flugeldasýning á vegum Björgunarsveitarinnar Suðurnes.

ATH Bílastæði eru við Ægisgötu og Tjarnargötu 12.