- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Þrettándagleði verður haldin í Reykjanesbæ mánudaginn 6. janúar 2025 og hefst blysför kl. 18:00 frá Myllubakkaskóla.
Bæjarbúar eru hvattir til að fjölmenna og eiga saman skemmtilega fjölskyldustund með púkum, álfum, Grýlu, jólasveinum og ýmsum öðrum kynjaverum.
Áður en dagskrá hefst, frá kl. 16:30 -18:00, verður boðið upp á skemmtilega luktarsmiðju í Myllubakkaskóla. Fólk tekur með sér krukku að heiman sem hægt verður að breyta í fallega lukt til að taka með sér í blysförina frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði á Hafnargötu. Allt efni og ljós (fyrir utan krukkuna sjálfa) fæst á staðnum. Verð fyrir efni er kr. 500 og ef kaupa þarf krukku greiðast kr. 500 fyrir hana að auki. Gengið er inn um inngang við Suðurtún. Allir velkomnir.
Klukkan 18:00 verður gengið í fylgd álfakóngs og drottningar og hirðar þeirra frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði við Hafnargötu 12. Á hátíðarsvæðinu verður það sjálf Grýla gamla sem tekur á móti hersingunni, álfar munu hefja upp raust sína og syngja þrettándasöngva og alls kyns kynjaverur verða á sveimi á svæðinu.
Þrettándabrennan verður á sínum stað við Ægisgötu og gestum verður boðið upp á heitt kakó og piparkökur til að ylja sér.
Jólin verða svo kvödd að hætti Björgunarsveitarinnar Suðurnes með glæsilegri flugeldasýningu eins og þeim er einum lagið.
Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátafélagið Heiðabúar, Björgunarsveitin Suðurnes og lúðrasveit og trommusveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar taka þátt í dagskránni.
Bílastæði eru við Ægisgötu og Ráðhús, Tjarnargötu 12.
Dagskrá birt með fyrirvara um breytingar
Hægt er að skoða viðburðinn á facebook hér.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)