- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
„Það var líf og fjör í bænum allt frá morgni til kvölds og við finnum hvernig fólk tekur svo sannarlega undir leiðarstefið okkar Saman með ljós í hjarta,“ segir Guðlaug María Lewis, verkefnastjóri Ljósanætur, eftir afar vel heppnaðan laugardag á Ljósanótt.
Skipuleggjendur telja að tugþúsundir hafi lagt leið sína á hátíðarsvæðið í gær, enda var dagskráin sérlega fjölbreytt með Árgangagöngu, listsýningum, ókeypis barnadagskrá, glæsilegum tónlistaratriðum, matarvögnum og tívolí. Kvöldinu lauk á stórtónleikum og flugeldasýningu í blíðskaparveðri sem skapaði ógleymanlega stemningu yfir miðbænum.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu gekk nóttin að mestu mjög vel fyrir sig og engin stór mál komu upp í tengslum við hátíðina.
Ljósanótt lýkur í kvöld
Í dag tekur við síðasti dagur Ljósanætur þar sem gestir geta enn notið sýninga, tónleika og fjölbreyttrar dagskrár víða um bæinn. Hátíðinni lýkur í kvöld þegar Bjartmar Guðlaugsson setur hátíðlegan lokapunkt á glæsilega Ljósanæturhelgi í kvöldmessu í Keflavíkurkirkju.





Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)