Tilboði ISS á Íslandi tekið í ræstingar í stofnunum bæjarsins

Frá undirritun samningsins, f.v. Jón Ingi Benediktsson innkaupastjóri, Kjartan Már Kjartansson bæja…
Frá undirritun samningsins, f.v. Jón Ingi Benediktsson innkaupastjóri, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Guðmundur Guðmundsson forstóri ISS á Íslandi, Björk Baldvinsdóttir viðskiptastjóri ISS á Íslandi og Tryggvi Þór Bragason umsjónarmaður fasteigna Reykjanesbæjar.

ISS á Íslandi átti lægsta tilboðið í ræstingar fyrir leikskóla og aðrar stofnanir bæjarins sem Reykjanesbær bauð út fyrir skemmstu. Ávinningur samningsins er 11,3% og gildir hann til þriggja ára. Ákvæði er í samningnum um  að framlengja megi tvisvar um eitt ár í senn að hámarki.

Útboðið skiptist í tvo verkhluta, Verkhluti I var fyrir Reykjanesbæ og Verkhluti II fyrir Fasteignir Reykjanesbæjar ehf. Samningur fyrir Verkhluta I var undirritaður í vikunni af Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra og Guðmundi Guðmundssyni forstjóra ISS á Íslandi. Hann tekur gildi 1. janúar 2018. Skrifað verður undir samning fyrir Verkhluta II í janúar nk. og tekur hann gildi 1. febrúar 2018.