Tilkynningu til eftirlitsnefndar frestað

Reykjanesbær og Reykjaneshöfn hafa nú sammælst með fulltrúum lífeyrissjóða, sem eru kröfuhafar Reykjaneshafnar og synjað höfðu samkomulaginu, að láta reyna til þrautar á næstu dögum hvort grundvöllur sé fyrir samkomulagi um fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar og stofnana hans.

Afgreiðslu tillögu bæjarstjórnar um tilkynningu til eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga sem var á dagskrá bæjarstjórnarfundar Reykjanesbæjar í gær hefur því verið frestað til næsta bæjarstjórnarfundar sem verður hinn 3. maí nk. Í kjölfarið verður leitast við að óska eftir greiðslufresti og kyrrstöðutímabili frá kröfuhöfum Reykjanesbæjar meðan viðræðurnar standa yfir.

Vísað er til tilkynninga Reykjanesbæjar um viðræður við kröfuhafa um endurskipulagningu fjárhags Reykjanesbæjar og stofnana hans. Eins og tilkynnt var þann 7. apríl 2016 samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar að bera undir kröfuhafa drög að samkomulagi um fjárhagslega endurskipulagningu. Í tilkynningunni kom einnig fram að ef samkomulag næðist ekki fyrir 15. apríl sl. yrði óskað eftir því að sveitarfélaginu væri skipuð fjárhaldsstjórn samkvæmt ákvæðum sveitastjórnarlaga. Með tilkynningu þann 14. apríl sl. var tilkynnt um að samkomulag myndi ekki nást þar sem minnihluti kröfuhafa hefði synjað samkomulagi.