- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Næst komandi sunnudag, þann 11. mars, verða haldnir svæðistónleikar „Nótunnar-uppskeruhátíðar tónlistarskóla“ fyrir Suðurnes, Suðurland og Kragann þ.e. höfuðborgarsvæðið umhverfis Reykjavík. Tónleikarnir verða í Salnum í Tónlistarhúsi Kópavogs. Alls verða haldnir þrennir tónleikar á grunnnámsstigi kl.11.30, á miðnámsstigi kl.13.00 og á miðnáms- og framhaldsnámsstigi kl.14.30.
Tónlistarskólinn sendir 3 glæsileg tónlistaratriði á svæðistónleikana sem valin voru af valnefnd skólans á tónleikum á Degi tónlistarskólanna laugardaginn 25. febrúar s.l.
Þau atriði sem taka þátt í svæðistónleikunum á sunnudaginn eru:
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Á svæðistónleikunum verður valnefnd á vegum yfirstjórnar Nótunnar sem velur alls 7 atriði af öllum þremur tónleikum dagsins til að taka þátt í lokatónleikum Nótunnar sem fara fram í Eldborg í Hörpu sunnudaginn 18. mars n.k.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)