- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Föstudaginn 31. janúar sl. kvöddu kennarar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar gömlu kennsluhúsin á Þórustíg 7 og Austurgötu 13. Tilefnið var að flutningum í nýtt húsnæði í Hljómahöll var þá svo til lokið og kennsla að hefjast mánudaginn 3. febrúar í nýja húsinu.
Kennarar gengu síðan fylktu liði frá fyrrum höfuðstöðvum skólans á Austurgötu til Hljómahallar undir trommuslætti og í fylgd lögreglu.
Með þessu vildu kennarar fanga hinn góða anda sem ríkti í gömlu húsunum og færa yfir í nýja húsið. Meðfylgjandi mynd var tekin við þetta tækifæri.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)