- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Laugardaginn 30. maí opnuðu tvær nýjar einkasýningar á Listasafn Reykjanesbæjar. Um er að ræða sýningarnar Ósamhverf endurskoðun / Asymmetrical Review eftir Steingrím Eyfjörð og Ómur / Resonans eftir Erlu Þórarinsdóttir. Sýningarnar eru opnar í allt sumar eða til 16. ágúst.
Í verkum Steingríms birtast leiðbeiningar og tilmæli sem setja áhorfandann í virka stöðu gagnvart verkinu. Hvort farið er eftir þeim eða ekki verður sjálft hluti af merkingu verksins og vekur spurningar um þátttöku, ábyrgð og tilvist listaverksins sjálfs.
Verk Erlu byggja á endurtekningu forma, samfelldum línum og textabrotum sem vísa í samtímann, pólitíska spennu og mannlega viðkvæmni. Þar mætast ógn og von, eyðileggingarmáttur og samkennd í áhrifaríku samtali um samtímann og mannlega reynslu.
Sýningarstjóri sýningar Steingríms er Daría Sól Andrews. Sýningarstjórar sýningar Erlu eru Helena Solveigar Aðalsteinsbur og Helga Þórsdóttir.
Íbúar og eru hvattir til að heimsækja Listasafn Reykjanesbæjar og kynna sér þessar tvær áhugaverðu sýningar!

Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)