Tvö þúsund andlitsgrímur að gjöf frá Kína

Jin Zhijian sendiherra afhendir Kjartani Má bæjarstjóra gjöf frá vinabænum Xianyang í Kína
Jin Zhijian sendiherra afhendir Kjartani Má bæjarstjóra gjöf frá vinabænum Xianyang í Kína

Þann 22. júlí heimsótti Kjartan Már bæjarstjóri sendiráð Kína á Íslandi og hitti þar Jin Zhijian sendiherra. Tilefni heimsóknarinnar var m.a. að endurgjalda heimsókn Jin í Ráðhús Reykjanesbæjar í apríl í fyrra en einnig til að ræða með hvaða hætti væri hægt að efla vinabæjarsamstarf milli Reykjanesbæjar og  Xianyang borgar. Reykjanesbær og Xianyang hófu formlegt vinabæjarsamstarf árið 2014 og hefur verið vilji til að efla tengslin.  

Kjartan Már tók jafnframt við gjöf frá Xianyang borg, 2.000 andlitsgrímum sem borgaryfirvöld vildu gefa Reykjanesbæ til að styðja við mikilvægar sóttvarnir í baráttu við kórónuveiruna. Grímurnar verða nýttar í viðkvæmum stofnunum og starfsstöðvum Reykjanesbæjar fyrir bæði starfsmenn og aðra íbúa bæjarins sem heimsækja þær.