Um snjómokstur í Reykjanesbæ

Ófærð
Ófærð

Nú þegar við fáum „loksins" vetur er mikið álag á starfsmönnum Þjónustumiðstöðvar Reykjanesbæjar og undirverktökum þeirra við snjómokstur.

Markmið Reykjanesbæjar er að veita hagkvæma vetrarþjónustu sem stuðlar að öryggi vegfarenda og íbúa bæjarins. En við þurfum að forgangsraða og ég ætla að skýra út hvernig verklagi er háttað hjá okkur.

Rétt er að geta þess að mestu vandræðin skapast þegar vegfarendur fara af stað á illa útbúnum farartækjum en þá skapast mesta ófærðin en ekki vegna þess að illa sé mokað.

Umsjón: Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar hefur yfirumsjón með snjómokstri og hálkuvörnum á götum, gangstéttum og göngustígum bæjarins samkvæmt ákveðinni forgangsröðun. Hjá Þjónustumiðstöð er vakt allan sólarhringinn, allt árið um kring. Frá 1. október til 15. apríl fer vaktmaður af stað kl. 4:30 og kannar aðstæður hverju sinni. Ef líkur eru á að hálka og eða snjór hafi safnast fyrir á götum bæjarins eru gerðar viðeigandi ráðstafanir. Sími Þjónustumiðstöðvar er 420 3200.

Snjómokstur og hálkueyðing gatna: Þær götur sem eru í forgangi eru strætóleiðir, stofnbrautir og helstu tengibrautir sem liggja í átt að neyðarþjónustu s.s. sjúkrahúsi, lögreglu og slökkvistöð auk gatna sem liggja í átt að skólum og leikskólum.

Þær götur sem liggja í brekku eru einnig í forgangi hvað varðar hálkueyðingu. Leitast er við að moka bílastæði við grunn- og leikskóla séu þótt það sé ekki í forgangi en oftast eru bílastæðin hreinsuð daginn eftir. Húsagötur eru ekki mokaðar nema að þær séu orðnar þungfærar. Ekki er mokað frá innkeyrslum og þurfa íbúar að sjá um það sjálfir. Við hálkueyðingu gatna er eingöngu notast við salt og þá í eins litlu magni og mögulegt er.

Snjómokstur og hálkueyðing gönguleiða: Miðað er við að moka fyrst þær leiðir sem liggja að grunnskólum og leikskólum. Síðan eru gönguleiðir meðfram helstu stofn- og tengibrautum og göngustígar á opnum svæðum hreinsaðir. Við hálkuvarnir á gönguleiðum er notast við salt og sand sem blandað er saman.

Húsagötur og fáfarnari götur: eru aðeins hreinsaðar ef þær eru orðnar þungfærar venjulegum einkabílum sem eru útbúnir til vetraraksturs. Ekki verður mokað frá innkeyrslum og þurfa íbúar því að sjá um það sj&aa