- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að setja á laggirnar sérstakt umbóta- og hagræðingarteymi til að auka skilvirkni stjórnsýslunnar og bæta rekstur bæjarins.
Markmið teymisins er að stuðla að markvissri hagræðingu, bæta þjónustu sveitarfélagsins og tryggja að skattfé íbúa nýtist sem best. Verkefnið er liður í þeirri stefnu nýs meirihluta að fara í heildstæða endurskoðun á rekstri sveitarfélagsins og innleiða umbætur sem skila raunverulegum árangri.
Til að leiða þetta mikilvæga verkefni hefur Reykjanesbær gert verktakasamning við Fannar Jónasson, einn af reynslumeiri sveitarstjórnarmönnum landsins. Fannar hefur áratugalanga reynslu af stjórnun sveitarfélaga og mun gegna lykilhlutverki við framkvæmd umbóta- og hagræðingarverkefna sveitarfélagsins.
Meðal verkefna Fannars verður að stýra vinnu við svokallaða núllgrunnsáætlun, fara yfir fyrirliggjandi stjórnsýslu- og fjárhagsúttektir, leggja mat á frekari greiningar sem kunna að vera nauðsynlegar og leiða eftirfylgni umbótaverkefna. Þá mun hann einnig veita kjörnum fulltrúum og stjórnendum ráðgjöf um framkvæmd verkefnanna og styðja sveitarfélagið í samskiptum við stjórnvöld og aðra samstarfsaðila.
Umbóta- og hagræðingarteymið verður skipað starfsfólki og stjórnendum með ólíka sérþekkingu sem vinna saman að því að greina tækifæri til einföldunar, bæta verkferla og hraða innleiðingu breytinga.
Fannar Jónasson mun leiða umbóta- og hagræðingarverkefni sveitarfélagsins í nánu samstarfi við bæjarstjóra. Gunnlaugur Kárason, formaður bæjarráðs, mun samræma samstarf við formenn ráða og nefnda og stuðla að því að hugmyndir um aukna skilvirkni og hagræðingu skili sér þvert á alla stjórnsýslu sveitarfélagsins. Andri Örn Víðisson mun leiða verkefni sem snúa að þróun stjórnsýslunnar, stafrænni umbreytingu og innleiðingu stefnumála sveitarfélagsins. Hermann Nökkvi Gunnarsson, aðstoðarmaður bæjarstjóra, verður teyminu til aðstoðar og jafnframt munu fulltrúar fjármála- og mannauðssviðs taka þátt í starfi þess.
Með þessu er tryggt að fagþekking frá lykilsviðum sveitarfélagsins komi að verkefnunum frá upphafi og að umbótaverkefni sveitarfélagsins njóti öflugrar samhæfingar og eftirfylgni.
„Við höfum þegar sýnt að við ætlum að fara vel með skattfé íbúa. Á fyrstu vikunum fækkuðum við pólitískum nefndum og ráðum og spöruðum sveitarfélaginu hátt í 10 milljónir króna á ári. Við höfum jafnframt lækkað laun bæjarstjóra sem skilar 4–5 milljóna króna sparnaði á ársgrundvelli og laun aðstoðarmanns bæjarstjóra eru um fjórum milljónum króna lægri á ári, að meðtöldum launatengdum gjöldum, en greidd voru fyrir aðstoðarmann bæjarstjóra á síðasta kjörtímabili.
Það voru fyrstu skrefin, en nú tekur við næsti áfangi þar sem við ætlum að halda áfram að bæta rekstur sveitarfélagsins og tryggja að hver króna nýtist sem best í grunnþjónustu og innviði,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Umbóta- og hagræðingarteymið er tímabundið verkefnateymi sem hefur það hlutverk að leiða áfram þessa vinnu, hraða nauðsynlegum breytingum, auka skilvirkni og skapa sterkari rekstrargrundvöll fyrir Reykjanesbæ.
Markmiðið er að einfalda stjórnsýslu, stytta boðleiðir, auka skilvirkni og nýta skattfé betur. Með markvissri eftirfylgni, faglegri verkefnastjórn og skýrri forgangsröðun ætlar Reykjanesbær að byggja upp öflugra sveitarfélag þar sem fjármunum íbúa er ráðstafað af ábyrgð og þjónustan verður betri.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)