Umhverfisvaktin 10. ágúst - 16. ágúst

Hér getur þú fylgst með framvindu framkvæmda í bænum og fengið nýjustu upplýsingar. Um lifandi gögn er að ræða sem breytast reglulega og gefa góða mynd af því sem er í gangi í bænum hverju sinni.

 

Njarðarbraut lokuð að hluta 10. og 11. ágúst

Vegna fræsinga verður Njarðarbraut lokuð að hluta á milli Bolafótar og Hjallavegar mánudaginn 10. ágúst og þriðjudaginn 11. ágúst.

Lokunartímar eru eftirfarandi:

  • Mánudaginn 10. ágúst frá kl. 09:00 til 13:00.
  • Þriðjudaginn 11. ágúst frá kl. 09:00 til 16:00.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar á framkvæmdasvæðinu.

Við þökkum fyrir sýndan skilning og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda.

Umhverfisvaktin verður uppfærð eins oft og unnt er yfir vikuna, en henni er deilt vikulega eða eins og nauðsynlegt er, hér á síðunni. Einnig er hægt að fylgjast með helstu framkvæmdum á vegum bæjarins á kortasjá Reykjanesbæjar.