Umhverfisvaktin 22. júní - 28. júní

Umhverfisvaktin

Framkvæmdir á Tjarnarbraut við Akurskóla

Unnið er að uppsetningu þriggja hraðahindrana á Tjarnarbraut og er vegurinn lokaður fyrir framan Akurskóla á meðan framkvæmdum stendur.

Búið er að merkja hjáleiðir og eru vegfarendur beðnir um að fylgja þeim merkingum sem settar hafa verið upp á svæðinu.

Sérstök athygli er vakin á því að sýna aðgát í nágrenni skólans og gera ráð fyrir tímabundnum truflunum á umferð meðan á framkvæmdum stendur.

Við þökkum fyrir skilninginn og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Umhverfisvaktin verður uppfærð eins oft og unnt er yfir vikuna, en henni er deilt vikulega eða eins og nauðsynlegt er, hér á síðunni. Einnig er hægt að fylgjast með helstu framkvæmdum á vegum bæjarins á kortasjá Reykjanesbæjar.