Umhverfisvaktin 4. maí - 10 maí

Umhverfisvaktin

Malbikun á Parísartorgi – 5. maí

Þriðjudaginn 5. maí er fyrirhuguð malbikun á Parísartorgi, ef veður leyfir.

Lokað verður fyrir umferð á svæðinu frá kl. 09:00 til 18:00.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar og lokanir á meðan framkvæmdum stendur.

Við þökkum fyrir skilninginn og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Umhverfisvaktin verður uppfærð eins oft og unnt er yfir vikuna, en henni er deilt vikulega eða eins og nauðsynlegt er, hér á síðunni. Einnig er hægt að fylgjast með helstu framkvæmdum á vegum bæjarins á kortasjá Reykjanesbæjar.