Undirritun rekstrarsamnings um leikskólann Akur

Mánudaginn 1. september sl. fór fram undirritun rekstrarsamnings milli Reykjanesbæjar og Sigrúnar Gyðu Matthíasdóttur, eiganda Núrgis ehf., um rekstur leikskólans Akurs.

Athöfnin fór fram í leikskólanum Akri að viðstöddum fulltrúum bæjarins, fulltrúum Hjallastefnunnar og starfsfólki skólans. Sigrún Gyða hefur stýrt leikskólanum um árabil og tekur nú formlega við rekstrinum í nafni Núrgis ehf.

Leikskólinn Akur mun áfram starfa eftir hugmyndafræði Hjallastefnunnar, sem hefur einkennt skólastarfið frá upphafi. Samningurinn markar þannig mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu og eflingu leikskólastarfs í Reykjanesbæ, þar sem lögð er áhersla á faglegt starf, öryggi og velferð barna.

Reykjanesbær óskar Sigrúnu Gyðu og starfsfólki leikskólans innilegrar hamingju með samninginn og hlakkar til áframhaldandi góðs samstarfs.