UngRIFF kemur til Reykjanesbæjar

Alþjóðlegar stuttmyndir fyrir börn og ungmenni á Bókasafni Reykjanesbæjar

Í fyrsta sinn tekur Reykjanesbær þátt í UngRIFF, kvikmyndahátíð fyrir börn og ungmenni sem er hluti af RIFF, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík. Samstarfið markar tímamót fyrir menningarlíf sveitarfélagsins og gefur börnum, ungmennum og fjölskyldum einstakt tækifæri til að upplifa kvikmyndir sem sjaldnast eru aðgengilegar utan alþjóðlegra kvikmyndahátíða.

Frá 24. september til 4. október verður boðið upp á sýningar á völdum stuttmyndum frá öllum heimshornum á Aðalsafni Bókasafns Reykjanesbæjar. Myndirnar koma frá ólíkum löndum og menningarheimum og bjóða áhorfendum að hlæja, undrast, hugsa og sjá heiminn frá nýjum sjónarhornum.

UngRIFF er sérstaklega ætlað börnum og ungmennum og dagskráin hefur verið sett saman með mismunandi aldurshópa í huga. Í boði verða sýningar fyrir 4 ára og eldri, 6 ára og eldri og 9 ára og eldri, þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Hver sýning inniheldur tvær til fimm stuttmyndir, ýmist teiknimyndir, leiknar myndir eða blandaða dagskrá. Myndirnar fjalla um vináttu, fjölskyldu, ævintýri, náttúru, ímyndunarafl og allt það sem gerir góða sögu eftirminnilega. Margar þeirra hafa ferðast á milli virtustu kvikmyndahátíða heims og eru sjaldan sýndar utan slíkra viðburða.

Við hvetjum foreldra, afa og ömmur, forráðamenn og öll áhugasöm börn og ungmenni til að nýta þetta einstaka tækifæri og upplifa fjölbreytt úrval alþjóðlegra stuttmynda á hvíta tjaldinu.

Dagskrána má sjá hér UngRIFF - alþjóðleg stuttmyndahátíð - Visit Reykjanesbær