Uppskeruhátíð Vaxtarsamnings Suðurnesja

Strandleiðin í Reykjanesbæ.
Strandleiðin í Reykjanesbæ.

Fimmtudaginn 5. desember kl. 17.00 í Bíósal Duushúsa, verður tilkynnt um úthlutun styrkja Vaxtarsamnings Suðurnesja í fjórða sinn.

Samningur um Vaxtarsamning var gerður milli sveitarfélaga á Suðurnesjum og ríkisins til fjögurra ára og er sá samningur nú að renna sitt skeið á enda. Það þýðir þó ekki að þetta góða verkefni sem hefur hleypt krafti í nýsköpun á svæðinu, haldi ekki áfram.
Á þessu tímabili hafa mörg frábær sprota- og þróunarverkefni hlotið stuðning. Verkefni sem verður spennandi að fylgjast með í framtíðinni. Þetta kraftmikla fólk, sem hefur brennandi áhuga á því sam það er að gera, nær vonandi allt markmiðum sínum. Styrkur frá Vaxtarsamningi hefur fyrir marga frumkvöðla verið mikil hvatning og viðurkenning fyrir verkefnið og hleypt enn frekari krafti í vinnuna.

Uppskeruhátíðin er opin öllum.