- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Jacek Czaputowicz utanríkisráðherra Póllands hittust í Víkingaheimum á laugardag og ræddu málin. Ráðherrann, sem er kunnugur fjölda Pólverja á Suðurnesjum, sagði þá una hag sínum vel hér.
Utanríkisráðherra Póllands var í opinberri heimsókn á Íslandi á föstudag og laugardag. Hann kom við í Víkingaheimum á leið heim á laugardag enda mjög áhugasamur um sögu Víkinga. Ásamt því að hitta bæjarstjóra Reykjanesbæjar fékk Jacek skoðunarferð um Víkingaheima í fylgd pólskumælandi starfsmanns safnsins.
Í samtali Kjartans Más og Jacek kom fram að það væri ósk stjórnvalda í Póllandi að pólsk börn og ungmenni, hvar sem þau væru niðurkomin í heiminum, ættu kost á góðri kennslu í móðurmálinu pólsku samhliða námi í tungumáli þess lands sem þau væru búsett í. Í okkar tilfelli er það íslenska.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)