Úthlutun úr umhverfissjóði Reykjanesbæjar

Frá úthlutun úr umhverfissjóði
Frá úthlutun úr umhverfissjóði

Úthlutun styrkja úr Umhverfissjóði Reykjanesbæjar fór fram í Víkingaheimum í gær en þar voru afhentir styrkir fyrir 2 milljónir króna.

Eftirtalin verkefni hlutu styrki að þessu sinni:

Umhverfisvitund grunnskólabarna  200.000 kr
Forvarnir í umferðar- og öryggismálum  310.000 kr
Njarðvíkurskóli og leikskólinn Gimli – uppbygging á barnalundi  400.000 kr
Leikskólinn Tjarnasel -  Grenndarskógur    100.000 kr
Leikskólinn Holt - Þróun náttúrulegs útisvæðis í leikskólanum Holti   390.000 kr
FFGÍR – útisvæða/útikennslustofur við grunnskóla Reykjanesbæjar  100.000 kr
Blái Herinn -  500.000 kr