- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þrjú listaverk bættust í listaverkasafn Listasafns Reykjanesbæjar sl. föstudag er þá komu hjónin Sveinn og Svava Kristín Valfells færandi hendi með listaverk, sem m.a. tengjast Reykjanesbæ. Eitt þessara verka er nú til sýnis á sumarsýningu safnsins, Mannfélagið, „At the Pool“ eftir Ásgeir Bjarnþórsson. Verkið er önnur útgáfa af mynd sem send var á Ólympíu sýninguna í London árið 1948.
Sveinn og Svava Kristín gáfu safninu einnig tvær aðrar myndir sem tengjast Reykjanesbæ. Önnur er mynd eftir Magnús Á. Árnason frá Narfakoti í Njarðvík og hin er mynd eftir Jón Steingrímsson stýrimann sem bjó síðari ár sín í Keflavík en hann var faðir Svövu. Báðar þessar myndir voru í eigu Þórgunnar Ársælsdóttur Árnasonar frá Narfakoti en hún var fyrri kona Jóns Steingrímssonar og móðir Svövu.
Listasafn Reykjanesbæjar á nú um 700 listaverk sem flest eru í nýrri kantinum og því er mikill fengur að þessari viðbót af eldri verkum í safnkostinn. Forstöðumaður safnsins Valgerður Guðmundsdóttir menningarfulltrúi og formaður menningarráðs Eva Björk Sveinsdóttir tóku á móti gjöfinni og þökkuðu höfðingsskapinn.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös