- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Listamaður Reykjanesbæjar er útnefndur fjórða hvert ár og nú er sá tími runninn upp. Verður það gert í 12. sinn í lok þessa kjörtímabils. Óskað er eftir rökstuddum tilnefningum frá bæjarbúum á netfangið menning@reykjanesbaer.is fyrir 24.mars n.k.
Listamaður Reykjanesbæjar
Nafnbótin Listamaður Reykjanesbæjar er heiðursviðurkenning sem veitt er listamanni sem hefur með störfum sínum skarað fram úr og haft markverð áhrif á lista- og menningarlíf Reykjanesbæjar eða aukið hróður bæjarins á sínu sviði.
Listamaður Reykjanesbæjar skal hafa skýr og sterk tengsl við Reykjanesbæ. Slík tengsl geta falist í búsetu, uppruna, starfsvettvangi eða virku og markverðu framlagi til menningarlífs bæjarins. Allar listgreinar og öll listform koma til greina.
Í lok hvers kjörtímabils er óskað eftir tillögum eða óskum um listamann Reykjanesbæjar. Bæjarráð úthlutar nafnbótinni. Ráðið skal fara yfir þær óskir og tillögur sem fram koma. Einnig er heimilt að bæta við nöfnum sem til greina koma eftir því sem ástæða er til. Listamaður Reykjanesbæjar fær styrk til að auðvelda viðkomandi að stunda list sína, viðurkenningarspjald og grip til minningar um atburðinn. Þá verða nöfn þeirra skráð á stall listaverks Erlings Jónssonar sem stendur í skrúðgarðinum við Sólvallagötu. Listamaður Reykjanesbæjar fær tækifæri til að kynna list sína með opinberum hætti í Reykjanesbæ.
Þeir sem hafa verið útnefndir Listamaður Reykjanesbæjar eru:
2022 Karen Sturlaugsson tónlistarmaður og stjórnandi
2018 Eiríkur Árni Sigtryggsson tónskáld og listmálari
2014 Sigurður Sævarsson tónskáld
2009 Ragnheiður Skúladóttir píanóleikari
2005 Rúnar Júlíusson tónlistarmaður
2001 Gunnar Eyjólfsson leikari
1997 Sossa Björnsdóttir listmálari
1994 Hilmar Jónsson rithöfundur
1993 Halla Haraldsdóttir listmálari
1992 Gunnar Þórðarson tónlistarmaður
1991 Erlingur Jónsson myndhöggvari
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)