Verðlaun veitt fyrir best skreytta húsið og götuna

Freyjuvellir 3
Freyjuvellir 3

Fín þátttaka var í skemmtilegum jólaleik á vefsíðunni Betri Reykjanesbær nú á aðventunni þegar íbúar gátu tilnefnt og greitt atkvæði þeim húsum og götum sem þeim þóttu hvað best skreytt. Í Aðventugarðinum á Þorláksmessu kl. 20 verða veittar viðurkenningar fyrir það hús og þá götu sem urðu hlutskörpust í leiknum.

Það er gaman að segja frá því að í þeirri götu sem þykir best skreytt er einnig að finna best skreytta húsið en þetta eru Freyjuvellir og Freyjuvellir 3. Það má búast við enn flottari jólaskreytingum frá þeim á næsta ári þar sem þau hljóta að launum gjafabréf úr Húsasmiðjunni, kr. 40.000 fyrir best skreytta húsið og kr. 70.000 fyrir best skreyttu götuna.

Það er Súlan verkefnastofa sem setti leikinn á laggirnar og var hann fyrst og fremst hugsaður til skemmtunar og til þess að vekja athygli á því sem vel er gert hjá íbúum Reykjanesbæjar. Nú er um að gera að kíkja á niðurstöður kosningarinnar á vefsíðunni Betri Reykjanesbær og bjóða fjölskyldunni á rúntinn til að skoða fallega skreytt hús og götur bæjarins.