Verðmætasköpun í atvinnulífinu á haustfundi Heklunnar í Hljómahöll

Haustfundur Heklunnar, Verðmætasköpun í atvinnulífinu, verður í Hljómahöll.
Haustfundur Heklunnar, Verðmætasköpun í atvinnulífinu, verður í Hljómahöll.

Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja mun standa fyrir hádegisfundi þann 27. október þar sem fjallað verður um verðmætasköpun í atvinnulífinu og skoðuð þau tækifæri sem búa á Suðurnesjum. Fundurinn verður haldinn í Bergi, Hljómahöll og hefst hann kl. 12:00 en húsið opnar kl. 11:45 með léttu hádegissnarli. Áætluð fundarlok eru kl. 13:30 og er fundurinn öllum opinn. 

Að sögn Bjarkar Guðjónsdóttur verkefnastjóra Heklunnar hefur mikill viðsnúningur orðið á atvinnulífinu á Suðurnesjum á stuttum tíma. „Nú glímum við við það lúxusvandamál að hér vantar fólk í vinnu og þar á ferðaþjónustan stóran þátt en líkja má Flugstöð Leifs Eiríkssonar við stóriðju okkar Suðurnesjamanna. Ferðaþjónustan er kærkomin en þó dugir ekki að setja öll eggin í sömu körfuna og því verða atvinnumálin skoðuð í sinni víðustu mynd og fengið sjónarhorn fjölbreyttra fyrirlesara sem fjalla munu um efnið. “

Fyrirlesarar á haustfundinum eru Grímur Sæmundsen formaður Samtaka Ferðaþjónustunnar (SAF) og forstjóri Bláa Lónsins hf., Heiðar Guðjónsson hagfræðingur og formaður stjórnar Vodafone og varaformaður stjórnar HS veitna og Hjördís Rut Sigurjónsdóttir sérfræðingur hjá Nordregio. Þá mun Ari Eldjárn uppistandari slá á létta strengi á fundinum en fundarstjóri er Berglind Kristinsdóttir framkvæmdastjóri Heklunnar og SSS.