Við erum öll í sama liði!

Frá lestrarstund á Gimli.
Frá lestrarstund á Gimli.

Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar býður foreldrum leikskólabarna í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði á fræðslufund um mikilvægi þess að  stuðla að sem bestum málþroska barna á aldrinum tveggja til sex ára.  Skoðað verður hvernig foreldrar geta lagt sitt af mörkum til að sem best takist að byggja upp góða undirstöðu undir frekara nám og þroska. 

Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 16. janúar kl. 16:30 - 18:15 í Heiðarskóla Reykjanesbæ.

Fyrirlesarar verða Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur og Ingibjörg B. Hilmarsdóttir leikskólafulltrúi Reykjanesbæjar