- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Nú er hægt að óska eftir viðtali hjá ráðgjafa á velferðarsviði á heimasíðu Reykjanesbæjar. Viðbótin er hluti af umbótaverkefninu Sterk framlína í krafti fjölbreytileikans þar sem notendavæn þjónusta er höfð í fyrirrúmi.
Leiðin er ætluð þeim sem óska eftir fyrsta viðtali hjá ráðgjafa á velferðarsviði. Sérfræðingur í framlínuþjónustu úthlutar ráðgjafa eftir erindi, í framhaldi er haft samband við viðkomandi og tími er bókaður. Hægt er að óska eftir túlk í viðtalið ef þess þarf.
Hér má finna eyðublað fyrir beiðni um viðtal hjá ráðgjafa ásamt upplýsingum um félagslega ráðgjöf.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)