Viðtalstímar bæjarfulltrúa

Anna Lóa. Ljósmynd: VF
Anna Lóa. Ljósmynd: VF

Anna Lóa Ólafsdóttir, bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar, býður upp á viðtalstíma á miðvikudögum í vetur frá kl. 16 -18. Viðtalstímarnir eru hluti af auknu aðgengi að bæjarfulltrúum sem boðað var fyrir kosningar í vor. Þau fara fram í rými inni á Bókasafni Reykjanesbæjar en skráning í viðtalstímana fer fram hjá Þjónustuveri Reykjanesbæjar í síma 421-6700 eða í afgreiðslu.