Vilhjálmur Jónsson tók gullið

Vilhjálmur með gullið. Ljósmynd: Íþróttasamband fatlaðra.
Vilhjálmur með gullið. Ljósmynd: Íþróttasamband fatlaðra.

Vilhjálmur Jónsson boccia spilari vann til gullverðlauna í sínum flokki í boccia í gær á ólympíuleikum fatlaðra. Ólympíuleikar fatlaðra standa nú yfir í Los Angeles í Bandaríkjunum og er stór hópur af íslenskum keppendum að keppa á leikunum. Vilhjálmur, sem keppir fyrir hönd íþróttafélagsins NES í Reykjanesbæ, sagðist í viðtali á Facebook síðu íþróttasambands fatlaðra, vera orðlaus yfir árangrinum og að honum liði dásamlega.

Hann sagði að úrslitaleikurinn hafi verið mjög erfiður enda sé leikmaðurinn sem hann mætti í þeim leik alveg frábær spilari. „Ég tapaði fyrir honum í fyrri leiknum í úrslitunum en tók hann svo í nefið í seinni leiknum. En hann er frábær spilari sem notaði battana vel í fyrri leiknum en í þeim seinni notaði ég battana lítið og fór þá að hitta betur." Vilhjálmur sagði að þjálfarinn sinn ætti mikið í sigrinum enda sé hún frábær þjálfari.

Frétt af vef VF