Vilja að bærinn komi að stjórn og rekstri HSS

Bæjarhlið Reykjanesbæjar.
Bæjarhlið Reykjanesbæjar.

Mikill meirihluti svarenda (69,7%) svarenda í rafrænni könnun Reykjanesbæjar segjast vilja að bærinn komi að stjórn og rekstri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, þar með taldri heilsugæslustarfsemi. Flestir svarenda (46,2%) töldu að Reykjanesbær ætti að stuðla að þjónustusamningi við ríkið en ríflega fjórðungur svarenda taldi að bærinn ætti að koma inn í stjórn HSS og annar fjórðungur að bærinn ætti að taka yfir rekstur HSS.
277 íbúar tóku þátt í könnuninni.