- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Óskað er eftir fólki sem vill starfa í notendaráði og hafa þannig áhrif á málefni fatlaðs fólks hjá Reykjanesbæ. Starf notendaráðs, sem eingöngu er skipað fötluðu fólki, er að gefa álit sitt á stefnumótun um málefni fatlaðs fólks í Reykjanesbæ ásamt því að taka upp mál að eigin frumkvæði.
Undanfari setu í notendaráði er námskeið þar sem farið er yfir umhverfið sem notendaráðið mun starfa í, s.s. lög, stjórnsýslu o.fl. Námskeiðið hefst 1. apríl kl. 16 - 17 og verður 6 skipti.
Umsóknarfrestur í notendaráðið er til 25. mars og skal sækja um á vef Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum eða í síma 421-7500.
Með því að smella hér opnast vefur MSS
Kennari námskeiðsins er Tinna Kristjánsdóttir, þroskaþjálfi og ekkert gjald er fyrir þátttöku á námskeiðinu. Frekari upplýsingar veitir Jón verkefnastjóri námskeiðsins í gegnum tölvupóstfangið jonkp87@gmail.com.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)