Vinabæjamót í Reykjanesbæ á fimmtudag og föstudag

Fánar vinaþjóðanna Svíþjóðar, Noregs og Finnlands, auk þess íslenska, blakta við hún utan við Ráðhú…
Fánar vinaþjóðanna Svíþjóðar, Noregs og Finnlands, auk þess íslenska, blakta við hún utan við Ráðhús Reykjanesbæjar

Reykjanesbær mun á fimmtudag og föstudag bjóða 19 fulltrúum frá vinabæjum til vinabæjamóts. Vinabæirnir eru Trollhättan í Svíþjóð, Kristiansand í Noregi og Kerava í Finnlandi. Þjóðirnar fjórar hafa á nýliðnum árum unnið að verkefnum tengdum innflytjendum, rafrænni stjórnsýslu og brottfalli úr framhaldsskólum. Auk þess hafa  farsæl íþróttamóta verið haldin til margra ára. Jafnframt því að ræða þau verkefni verða lögð drög að nýjum samstarfsverkefnum.

Vinabæjamótið fer að mestu fram á vinnufundum í Duus Safnahúsum og Hljómahöll. Auk þess fá fulltrúar þjóðanna kynningu á bænum, m.a. með skoðunarferð um bæinn. Komið verður við í afmæliskaffi á Nesvöllum sem fagnar 10 ára starfsafmæli föstudaginn.

Fulltrúar Reykjanesbæjar í vinabæjasamstarfinu hlakka til áframhaldandi farsæl samstarfs við vinaþjóðirnar þrjár.