- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Atvinnurekendur eru jákvæðir í garð þeirra einstaklinga sem hafa áhuga á að fara í starfsþjálfun og hafa verið í starfsendurhæfingu að sögn Elfu Hrundar Guttormsdóttur ráðgjafa en alls starfa þrír ráðgjafar hjá VIRK á Reykjanesi.
Þjónustan miðar að því að auka vinnugetu og er ætluð þeim sem stefna aftur út á vinnumarkað en heildarfjöldi þeirra sem leitað hafa til virk er 526 þar af 150 sem eru í reglulegum viðtölum og eftirfylgd og 266 sem hafa útskrifast. Alls hafa 110 hætt þjónustu.
Að sögn Elfu Hrundar var framfærslustaða þeirra sem nýtt hafa sér þjónustu VIRK á landsvísu í árslok 2014 þannig að 64% þeirra eru með laun á vinnumarkaði, í virkri atvinnuleit eða á námslánum.
"Einstaklingar sem koma í ráðgjöf til VIRK eiga kost á því að prófa sig í starfi á almennum vinnumarkaði. Í flestum tilfellum hafa einstaklingar verið í starfsendurhæfingu hjá Samvinnu á vegum VIRK og ráðgjafar hjá Samvinnu finna starf fyrir þá einstaklinga sem hafa áhuga á því að fara í starfsþjálfun. Í sumum tilfellum hafa einstaklingar fengið vinnu í framhaldinu en það er ekki markmiðið með starfsþjálfuninni”, segir Elfa Hrund sem segir það jákvætt þegar einstaklingar sem hafa ekki mikla trú á því að eiga afturkvæmt á vinnumarkað fá vinnu eftir að hafa prófað sig í starfi.
„Mín upplifun sem ráðgjafi á Reykjanesi er sú að atvinnurekendur eru mjög jákvæðir í garð þeirra sem þurfa að fá tækifæri til að prófa sig í starfi. Atvinnurekendur taka vel á móti einstaklingunum og viðmótið er hlýlegt í garð þeirra sem koma tímabundið í starfsþjálfun. Það græða allir á þessu samstarfi, vinnustaðurinn fær tækifæri til að kynnast einstaklingnum og vera honum innan handar í ákveðinn tíma – einstaklingurinn fær tækifæri til að prófa sig í starfi og samfélagið fær í flestum tilfellum virkari einstaklinga til að taka þátt í mótun þess.
Það getur skipt miklu máli fyrir einstakling sem hefur þurft að hætta að vinna vegna heilsubrests eða er kominn á aldur að fá vinnu sem hentar. Þá verða starfslokin mun jákvæðari fyrir vikið.”
(Frétt og mynd af vef VF)
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)