- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Díana Hilmarsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Margrét A. Sanders og Margrét Þórarinsdóttir.
Að auki sátu fundinn Birgir Már Bragason áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Helga María Finnbjörnsdóttir boðaði forföll, Birgir Már Bragason sat fyrir hana.
Lögð var fram skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, unnin á grundvelli laga nr. 88/2021 um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála og laga nr. 80/2002 um barnavernd. Kjörnir oddvitar funduðu með Heru Ósk Einarsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs, mánudaginn 30. mars 2026, þar sem efni skýrslunnar var kynnt og farið yfir niðurstöður hennar.
Þegar hefur verið skipað úrbótateymi og vinna hafin við gerð úrbótaáætlunar sem bæjarráð leggur mikla áherslu á
að verði unnin með markvissum hætti. Úrbótaáætlun skal lögð fyrir Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála eigi síðar en 29. apríl 2026. Stefnt er að því að innleiðingu úrbóta verði lokið fyrir árslok 2026. Bæjarráð og velferðarráð skulu upplýst reglubundið um framvindu málsins, í samræmi við góða stjórnsýsluhætti.
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
Lagt fram erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi.
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum er varðar vígslu Vatnsnesshússins áður en lengra er haldið þar sem Reykjanesbær er meirihluti eigandi hússins. Bæjarráð felur Halldóru Guðrúnu Jónsdóttur sviðsstjóra menningar- og þjónustusviðs að vinna áfram í málinu.
Lögð fram Stefna um opinbera þjónustu frá stjórnarráði Íslands.
Fylgigögn:
Stefna um opinbera þjónustu - mars 2026
Lögð fram til kynningar ársskýrsla Brunavarna Suðurnesja 2025
Fylgigögn:
Erindisbréf stjórnar Brunavarnar Suðurnesja bs. lagt fram til kynningar.
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Eignasjóðs Reykjanesbæjar.
Tekið til sérstakrar samþykktar:
Annað mál fundargerðarinnar - Myllubakkaskóli – stækkun á íþróttamannvirki (2021050174). Bæjarráð samþykkir 5-0 framlagða tillögu um stækkun sem felur ekki í sér kostnaðaraukningu við heildarverkefnið.
Fimmta mál fundargerðarinnar - Klapparstígur 7 (2026030442). Bæjarráð samþykkir 5-0 að framlengja afnotasamningi af Klapparstíg 7 til eins árs með lokadagsetningu þann 31. október 2027. Auk þess felur bæjarráð deildarstjóra eignaumsýslu að kostnaðarmeta þær framkvæmdir sem óskað er eftir að ráðast í.
Fylgigögn:
Fundargerð 27. fundar stjórnar eignasjóðs 26. mars 2026
Lagðar fram til kynningar fundargerðir neyðarstjórnar Reykjanesbæjar.
Fylgigögn:
Fundargerð 95. fundar neyðarstjórnar 25. mars 2026
Fundargerð 96. fundar neyðarstjórnar 26. mars 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja.
Fylgigögn:
Fundargerð 99. fundur stjórn BS
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fylgigögn:
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 996
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Fylgigögn:
Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga - 90
Lögð fram til kynningar fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja.
Fylgigögn:
323. fundur heilbrigðisnefndar Suðurnesja 25. mars 2026
• Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (vindorka og verndarflokkur), 565. mál
Með því að smella hér opnast frumvarp til breytingar á lögum
• Frumvarp til laga um Stofnun atvinnuveganna, 568. mál
Með því að smella hér opnast frumvarp til laga
• Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits), 582. mál
Með því að smella hér opnast frumvarp til breytingar á lögum
Umsagnarmál lögð fram.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:58. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 7. apríl 2026.