1571. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn að Grænásbraut 910 - Seltjörn, 9. júlí 2026, kl. 08:00
Viðstaddir: Gunnlaugur Kárason formaður, Alexander Ragnarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Margrét Þórarinsdóttir.
Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Kristján Pétur Kristjánsson boðaði forföll, Alexander Ragnarsson sat fyrir hann.
1. Úttektir á fjármálum og stjórnsýslu Reykjanesbæjar (2026070070)
Unnar Steinn Bjarndal bæjarlögmaður situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt er fram minnisblað bæjarstjóra dags. 7. júlí 2026: Ýmsar aðgerðir vegna úttekta á fjármálum og stjórnsýslu
Reykjanesbæjar og vegna umbóta- og hagræðingarverkefna.
Í minnisblaðinu er lagt til að gerður verði verktakasamningur við Fannar Jónasson, fyrrverandi sveitarstjóra, sem mun meðal annars taka að sér verkefnastjórn við framkvæmd núllgrunnsáætlunar sveitarfélagsins og vera ráðgjafi kjörinna fulltrúa og starfsmanna varðandi það hvernig henni er fylgt eftir. Þá er lagt til að Fannar rýni niðurstöður þeirra stjórnsýslu- og fjárhagslegu úttekta sem framkvæmdar hafa verið og geri áætlun um hvaða úttektir skuli nú fara fram. Einnig að Fannar hafi umsjón með ýmsum umbótaverkefnum og hagræðingaraðgerðum og veiti bæjarstjóra og bæjarráði ráðgjöf í þeim efnum. Verkefnin eru nánar skilgreind í framlögðum verktakasamningi.
Bæjarráð samþykkir 3-2 framlögð drög að verktakasamningi við Fannar Jónasson og felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins. Útgjöld vegna verktakasamnings á árinu 2026 verða fjármögnuð af bókhaldslykli sérfræðiþjónustu 4380 á deildum 21410 (fjármála- og stjórnsýslusvið) og 21412 (bæjarstjóri).
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu greiða atkvæði á móti.
Í minnisblaðinu eru jafnframt lagðar til breytingar á verkefnum deildarstjóra UT-deildar og að starfsmaður verði ráðinn í UT-þjónustu.
Bæjarráð samþykkir tillöguna 3-2 og er Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra og Halldóru G. Jónsdóttur sviðsstjóra menningar- og þjónustusvið falið að uppfæra starfslýsingu deildarstjóra UT-deildar. Kr. 5.000.000 eru fluttar af bókhaldslyklum launa frá 09520 á 21419 (UT-deild).
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu greiða atkvæði á móti.
Í minnisblaðinu er jafnframt að finna tillögur að tilfærslu fjárheimilda vegna tímabundinnar ráðningar aðstoðarmanns bæjarstjóra. Lagt er til að fjárheimildir vegna launafulltrúa, sem ekki verður nýtt, að fjárhæð kr. 7.200.000, verði flutt af bókhaldslykli launa í launadeild 21440 yfir á deild bæjarstjóra 21412.
Bæjarráð samþykkir tillöguna 3-2 og verða fjárheimildir að fjárhæð kr. 7.200.000 fluttar af bókhaldslykli launa í launadeild 21440 yfir á deild bæjarstjóra 21412.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu greiða atkvæði á móti.
Í minniblaðinu er lagt til að sett verði á laggirnar teymi sem hefur umsjón með hagræðingar- og umbótaverkefnum sveitarfélagsins (,,HU-teymið“) sem hefur það hlutverk að hrinda í framkvæmd hagræðingar- og umbótaverkefnum og vera samráðsvettvangur allra framangreindra aðila. Teyminu er ætlað að starfa tímabundið.
Auk bæjarstjóra munu Gunnlaugur Kárason formaður bæjarráðs, Fannar Jónasson og Andri Örn Víðisson deildarstjóri UT-deildar tilheyra teyminu. Þá verður Hermann Nökkvi Gunnarsson aðstoðarmaður bæjarstjóra teyminu til aðstoðar. Þá verður fjármálastjóri eða annar fulltrúi fjármála- og stjórnsýslusviðs hluti af teyminu og jafnframt fulltrúi frá mannauðsdeild. Formaður bæjarráðs og bæjarstjóri munu gefa bæjarráði reglulegar skýrslur um störf teymisins. Öll mál sem þarfnast umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði munu hljóta lögmæta málsmeðferð þar.
Ekki er greitt sérstaklega fyrir þátttöku í vinnu teymisins.
Bæjarráð samþykkir tillöguna 3-2 og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu greiða atkvæði á móti.
Í minnisblaðinu er lagt til að skipun og verkefni ráðningarnefndar sveitarfélagsins verði endurskoðuð. Regínu F. Guðmundsdóttur fjármálastjóra og Kristínu Þ. Þorgilsdóttur mannauðsstjóra er falið að gera tillögur til bæjarráðs um það hvernig best sé að haga störfum nefndarinnar, til að mæta markmiðum nýs bæjarstjórnarmeirihluta um bættan rekstur og aukna skilvirkni í stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir tillöguna 3-2.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu greiða atkvæði á móti.
Gunnlaugur Kárason vék af fundi meðan neðangreind tillaga var tekin fyrir til afgreiðslu og Rúnar Fossádal Árnason kemur inn sem varamaður.
Margrét Þórarinsdóttir tók við fundarstjórn undir þessum lið.
Í minnisblaðinu er lagt til að samhliða breyttri skipan nefnda og ráða og vegna umsvifamikilla verkefna sem framundan eru í ýmsum hagræðingar- og umbótaverkefnum, muni formaður bæjarráðs fá aukið hlutverk. Í því felst meðal annars að hann eigi samskipti við formenn ráða og nefnda sveitarfélagsins og eftir atvikum sviðsstjóra í því skyni samræma störf þeirra og tryggja skilvirka og hagkvæma stjórnsýslu sveitarfélagsins. Þá skal formaður bæjarráðs kalla eftir hugmyndum og tillögum um hagræðingaraðgerðir. Hagræðingar- og umbótaverkefni verða framkvæmd þvert á öll svið og ná til allra nefnda og ráða og mun formaður bæjarráðs gegna lykilhlutverki í því að samræma aðgerðir og tryggja öruggan framgang mála. Vegna aukinna verkefna formanns bæjarráðs, sem bætast við hefðbundin störf hans, er lagt til að gerðar verði breytingar á launakjörum hans. Lagt er til að frá 01.08.2026 verði laun formanns bæjarráðs Reykjanesbæjar 50% af þingfararkaupi.
Bæjarráð samþykkir tillöguna um breytt launakjör formanns bæjarráðs 3-2. Breytt launakjör rúmast innan fjárheimilda launa og launatengdra gjalda á deild bæjarráðs 21011.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu greiða atkvæði á móti.
Bókun minnihluta bæjarráðs:
„Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar geta ekki samþykkt einn einasta lið málsins sem ber heitið “Úttektir á fjármálum og stjórnsýslu Reykjanesbæjar”. Meira að segja nafn málsins slær ryki í augu íbúa. Með þessu er verið að auka fjárhagsleg útgjöld sveitarfélagsins um tugi milljóna, auka við stjórnsýsluna með því að blása út kostnað við stuðning við bæjarstjóra með því að taka stöðugildi af öðrum sviðum og hækka laun formanns bæjarráðs um tugi prósenta þrátt fyrir minni ábyrgð. Þetta er þvert á loforð Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins fyrir kosningar um að bæta grunnþjónustu, auka gagnsæi og stöðva bruðl með skattfé.
Hér er nýr meirihluti að samþykkja að út árið 2026 verði þrír bæjarstjórar í vinnu hjá sveitarfélaginu sem kostar Reykjanesbæ tæpar 10 milljónir á mánuði. Þetta er að okkar mati óábyrg ráðstöfun á skattfé íbúa sveitarfélagsins. Engin rök sem lögð eru fram í málinu styðja við það. Þetta mál er óforsvaranlegt með öllu.“
Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsókn.
Fundarhlé kl. 8:53
Fundur aftur settur kl. 9:22
Bókun meirihluta bæjarráðs:
„Meirihlutinn hafnar þessari bókun minnihlutans enda stenst hún hvorki staðreyndir né einföldustu skoðun á þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið frá upphafi kjörtímabilsins.
Frá fyrsta degi hefur nýr meirihluti ráðist í umfangsmikla hagræðingu í eigin rekstri og byrjað á sjálfum sér. Með fækkun pólitískra nefnda og ráða sparast sveitarfélaginu hátt í 10 milljónir króna á ári. Laun bæjarstjóra hafa verið lækkuð sem skilar sveitarfélaginu 4–5 milljóna króna sparnaði á ári og laun aðstoðarmanns bæjarstjóra eru um fjórum milljónum krónum lægri á ársgrundvelli með launatengdum gjöldum en greidd voru aðstoðarmanni bæjarstjóra á síðasta kjörtímabili.
Vert er að taka fram að ráðning verktaka eða breyting á kjörum formanns bæjarráðs eru innan núverandi fjárheimilda vegna þess að hagræðingin var svo mikil. Bara það eitt og sér gengisfellir málflutning minnihlutans.
Eina fólkið sem slær ryki í augu bæjarbúa eru þeir sem segja að við séum með þrjá bæjarstjóra. Hér er beinlínis logið og engu líkara en að gervigreindarforrit oddvita minnihlutans sé að leika þá grátt.
Hér er að störfum einn bæjarstjóri. Rétt er að fyrrverandi bæjarstjóri er á biðlaunum eins og tíðkast í öllum sveitarfélögum, það er þó ekki ljóst að önnur sveitarfélög hafi gert sömu mistök og minnihlutinn hér í Reykjanesbæ sem gleymdi að gera ráð fyrir biðlaununum í fjárhagsáætlun.
Allt tal um óábyrga notkun skattfjár íbúa kemur sannarlega úr hörðustu átt frá minnihlutanum.
Ef Framsókn og Samfylkingin hefðu haft jafn mikinn áhuga á hagræðingu á síðasta kjörtímabili og þau segjast hafa í dag hefðu þau getað byrjað á eigin stjórnarháttum og eigin útgjöldum. Það gerðu þessir flokkar ekki.
Meirihlutinn mun halda áfram þeirri vegferð sem kjósendur veittu honum umboð til: að fara betur með skattfé íbúa, bæta rekstur sveitarfélagsins og byggja ákvarðanir á staðreyndum fremur en upphrópunum. Það er einmitt þess vegna sem við erum að setja á fót umbóta- og hagræðingarteymi. Það segir sína sögu að minnihlutinn leggist gegn því, eins og öllum öðrum hagræðingartillögum hingað til.“
Margrét Þórarinsdóttir og Alexander Ragnarsson Sjálfstæðisflokki og Gunnlaugur Kárason Miðflokki.
Bókun minnihluta bæjarráðs:
„Fyrirspurn til Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins
Laun bæjarfulltrúa og nefndarfólks Reykjanesbæjar hafa verið þau sömu síðan 2023 þegar þáverandi bæjarstjórn tók ákvörðun um að frysta launahækkanir í takt við hækkanir á árlegu þingfarakaupi.
Nú þegar bæjarstjóri hefur tilkynnt fulltrúum minnihlutans að núverandi meirihluti Reykjanesbæjar hyggst taka inn hækkun á þingfarakaupi ársins 2026, vilja fulltrúar Samfylkingar og Framsóknar leggja fram eftirfarandi spurningar um málið:
-
- Hvað mun þessi hækkun launa allra bæjarfulltrúa og nefndarfólks hjá Reykjanesbæ þýða í krónutölum?
- Hvernig hyggst meirihlutinn fjármagna slíkt á miðju ári þar sem ekki var gert ráð fyrir umræddum hækkunum í fjárhagsáætlun ársins?
Umræddar breytingar á launakjörum voru ekki kynntar formlega innan bæjarráðs né tekin umræða þar um. Hér er enn ein ákvörðunin tekin af alvaldi bæjarstjóra.
Gróflegir útreikningar sýna að hækkunin í bæjarstjórn eingöngu er um tæp milljón mánaðarlega. Slíkar fjárhagslegar ákvarðanir eiga heima innan bæjarráðs Reykjanesbæjar.
Við óskum eftir svörum við fyrirspurn okkar á næsta fundi bæjarráðs.“
Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsókn.
2. Fjárhagsáætlun 2027 – fjárhagsáætlunarferli og tímalína (2026070036)
Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram samþykkt um fjárhagsáætlunarferli Reykjanesbæjar.
Bæjarráð samþykkir 5-0.
3. Klapparstígur 7 – framlenging afnotasamnings (2026030442)
Afnotasamningur um húsnæði Reykjanesbæjar að Klapparstíg 7, er í gildi til október mánaðar 2027. Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkir að AA samtökin hafi afnot að húsinu að Klapparstíg 7 til þess tíma en að þeim tíma loknum stendur til að auglýsa húsið til sölu. Fram að þeim tíma er Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra falið að funda með AA samtökunum og finna þeim annað húsnæði innan sveitarfélagsins.
4. Tímabundið stöðugildi verkefnastjóra í tómstundamiðstöð (2026070058)
Lagt fram erindi frá skrifstofu Tómstundamiðstöðvar Reykjanesbæjar þar sem óskað er eftir stöðugildi fyrir verkefnastjóra vegna aukins umfangs verkefna og tilfærslu milli bókhaldslykla Tómstundamiðstöðvarinnar.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með að Tómstundamiðstöðin hafi fundið svigrúm innan eigin fjárhagsramma fyrir nýrri stöðu. Bæjarráð ítrekar ánægju sína með störf starfsfólks Tómstundamiðstöðvarinnar.
Bæjarráð samþykkir 5-0 tilfærsluna sem lögð er til milli bókhaldslykla. Bæjarráð ítrekar að horft verði til stöðugildisins í fjárhagsáætlunarvinnu sem er framundan.
5. Lóðaframboð fyrir leiguhúsnæði (2026060438)
Afgreiðslu frestað.
6. Jón Skúli Jónsson - umsókn um tækifærisleyfi (2026060429)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi.
Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
7. Hafnagata 27 - úrskurður vegna stjórnsýslukæru (2026040267)
Lagt fram til upplýsinga úrskurður umhverfis- og auðlindamála nr. UUA2604013.
Fylgigögn:
8. Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga - endurskoðun (2026070062)
Lagt fram erindi frá innviðaráðuneytinu vegna vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga. Svara er óskað fyrir 21. september nk.
Bæjarráð felur sviðsstjórum að undirbúa drög að svari fyrir hvert ráð og leggja fyrir á fyrsta fundi hvers ráðs í ágúst áður en lagt er fyrir bæjarráð að nýju.
9. Hluthafafundur HS Veitna hf. 7. ágúst 2026 (2026070059)
Lagt fram boð um hluthafafund HS Veitna hf.
Bæjarráð samþykkir 3-2 að fela Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að fara með atkvæði Reykjanesbæjar á fundinum. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu greiða atkvæði á móti.
Bókun minnihluta bæjarráðs:
„Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar furða sig á því að nýr bæjarstjóri hefur óskað eftir að forstjóri HS veitna hf. boði til hluthafafundar án þess að fyrir liggi bókun og samþykki bæjarráðs þess efnis. Enn og aftur kemur reynsluleysi nýs meirihluta fram þar sem bæjarstjóri hefur ekki heimildir til að taka slíkar ákvarðanir einn og sjálfur frekar en aðrar í nafni bæjarstjórnar. Eins teljum við mikilvægt að fram komi að nýr meirihluti hefur ákveðið að ganga gegn samkomulagi sem hefur lengi verið í gildi sem snýr að því að stjórn sitji fram að næsta aðalfundi óháð sveitarstjórnarkosningum. Slíkur gjörningur ber einungis merki um skort á heiðarleika og virðingu fyrir þeim hefðum sem í gildi hafa verið.“
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsókn og Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu.
Fundarhlé kl. 10:35
Fundur aftur settur kl. 10:45
Bókun meirihluta bæjarráðs
„Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og fer með daglegan rekstur þess. Samskipti við forstöðumenn fyrirtækja og stofnana sem sveitarfélagið er í samskiptum við fellur þar undir. Fullyrðing minnihlutans er því röng. Þar með hefur enn ein röng fullyrðing ratað inn í bókanir minnihlutans.
Bæjarbúar hafa nýlega kveðið upp sinn dóm í sveitarstjórnarkosningum. Meirihlutinn telur því bæði eðlilegt og í samræmi við grundvallarsjónarmið lýðræðisins að fulltrúar Reykjanesbæjar í stjórnum félaga endurspegli sem fyrst þann vilja sem kjósendur hafa lýst.
Það vekur því furðu að minnihlutinn telji eðlilegt að pólitískar skipanir, sem byggja á umboði frá sveitarstjórnarkosningunum árið 2022, vegi þyngra en það nýja umboð sem kjósendur veittu í kosningunum í maí 2026. Þegar kjósendur fela nýjum meirihluta ábyrgð á stjórn sveitarfélagsins er eðlilegt að það endurspeglist einnig í stjórnskipan þeirra félaga þar sem Reykjanesbær fer með eigendahlutverk og skipar fulltrúa fyrir hönd sveitarfélagsins.“
Margrét Þórarinsdóttir og Alexander Ragnarsson Sjálfstæðisflokki og Gunnlaugur Kárason Miðflokki.
10. Fundargerð skipulagsráðs 3. júlí 2026 (2026010016)
Lögð framfundargerð skipulagsráðs til samþykktar. Eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 19. júní tekin fyrir til sérstakrar samþykktar.
Sjötta mál fundargerðarinnar, Valhallarbraut 868 - breyting á deiliskipulagi (2026030612) samþykkt 5-0 án umræðu.
Sjöunda mál fundargerðarinnar, Keilisbraut 753 - hjúkrunarheimili (2026060366) samþykkt 5-0 án umræðu.
Áttunda mál fundargerðarinnar, Álfadalur 1-7 - breyting á deiliskipulagi (2025110121) samþykkt 5-0 án umræðu.
Níunda mál fundargerðarinnar, Hafnargata 22-24 - bílastæði (2026060365) samþykkt 5-0 . Bæjarráð leggur til að samkomulagið verði lagt fyrir skipulagsráð með teikningum.
Bókun minnihluta bæjarráðs:
Mál 5 - Samantekt á stöðu lóða (2026060425)
„Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar fagna samantekt skipulagsráðs um stöðu sérbýla í Reykjanesbæ. Í samantektinni kemur fram að í sveitarfélaginu eru eftirfarandi sérbýli ýmist tilbúin, eru í auglýsingu eða hafa verið samþykkt deiliskipulag um.
Einbýlishús, alls 50 lóðir.
Parhús, alls fjórar lóðir.
Raðhús, alls 169 lóðir.
Samtals eru því 289 sérbýli í sveitarfélaginu til úthlutunar eða í vinnslu en þó án sérbýla í nýja hverfinu Keflavíkurborgum, sem mun hækka hlutfallið enn frekar, eða um 130 sérbýli. Er niðurstaðan í takt við það sem við höfum statt og stöðugt haldið fram, það er til nóg af sérbýlishúsalóðum í Reykjanesbæ.“
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsókn og Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu.
Bókun meirihluta bæjarráðs
Mál 5 - Samantekt á stöðu lóða (2026060425)
„Meirihlutinn þakkar fyrir góða samantekt. Mikilvægt er að halda áfram að fjölga þeim sérbýlislóðum sem eru til úthlutunar. Það er ekki bara fjöldinn sem skiptir máli heldur stærð og tegund þess húsnæðis sem fyrirhugað er á lóðunum. Meirihlutinn fagnar áherslu skipulagsráðs um fjölgun sérbýlislóða.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Miðflokks fagna því að nú liggi fyrir yfirlit yfir stöðu sérbýlislóða í Reykjanesbæ. Slíkt yfirlit staðfestir mikilvægi þess að vinna markvisst að því að tryggja fjölbreytt framboð lóða til framtíðar.
Meirihlutinn hefur frá upphafi lagt ríka áherslu á að fjölga sérbýlislóðum og skapa fjölskyldum raunverulegt val um búsetu. Markmiðið er ekki aðeins að telja saman lóðir heldur að tryggja stöðuga uppbyggingu, hraða skipulagsvinnu og reglulega úthlutun þannig að framboðið mæti eftirspurn.
Þessi vinna er þegar hafin og verður áfram eitt af lykilverkefnum meirihlutans á kjörtímabilinu.“
Margrét Þórarinsdóttir og Alexander Ragnarsson Sjálfstæðisflokki og Gunnlaugur Kárason Miðflokki.
Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 5-0.
Fylgigögn:
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:10.