622. fundur

21.12.2021 17:00

622. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, fjarfundur haldinn 21. desember 2021, kl. 17:00

Viðstaddir: Andri Örn Víðisson, Díana Hilmarsdóttir, Friðjón Einarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Hanna Björg Konráðsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Kolbrún Jóna Pétursdóttir, Margrét Þórarinsdóttir, Ríkharður Ibsen, Styrmir Gauti Fjeldsted, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari. Í forsæti var Guðný Birna Guðmundsdóttir.

1. Fundargerðir bæjarráðs 9. og 16. desember 2021 (2021010002)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Andri Örn Víðisson og Friðjón Einarsson.

Fundargerðirnar samþykktar 10-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 1348. fundar bæjarráðs 9. desember 2021
Fundargerð 1349. fundar bæjarráðs 16. desember 2021

2. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 15. desember 2021 (2021010010)

Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi liði fundargerðarinnar frá 15. desember til sérstakrar samþykktar:

Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. desember 2021:
Annar liður fundargerðarinnar Nýtt tengivirki á Njarðvíkurheiði - breyting á deiliskipulagi (2020060543) samþykktur 10-0 án umræðu.
Þriðji liður fundargerðarinnar Hafnarbakki 10 (2019120105) samþykktur 10-0 án umræðu.
Fjórði liður fundargerðarinnar Flugvallarbraut 936 - breytt notkun (2021120001) samþykktur 10-0 án umræðu.

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Friðjón Einarsson, Ríkharður Ibsen, Kjartan Már Kjartansson og Hanna Björg Konráðsdóttir.

Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 10-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 283. fundar umhverfis- og skipulagsráðs 15. desember 2021

3. Fundargerð barnaverndarnefndar 6. desember 2021 (2021010570)

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Kolbrún Jóna Pétursdóttir, Margrét Þórarinsdóttir og Friðjón Einarsson.

Fylgigögn:

Fundargerð 288. fundar barnaverndarnefndar 6. desember 2021

4. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 7. og 14. desember 2021 (2021010006)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar.

Fundargerðirnar samþykktar án umræðu 10-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 155. fundur ÍT 7. desember 2021
Fundargerð 156. fundur ÍT 14. desember 2021

5. Fundargerð velferðarráðs 8. desember 2021 (2021010011)

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Friðjón Einarsson og Guðný Birna Guðmundsdóttir.

Fundargerðin samþykkt 10-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 405. fundar velferðarráðs 8. desember 2021

6. Fundargerð stjórnar Reykjaneshafnar 9. desember 2021 (2021010009)

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Friðjón Einarsson, Hanna Björg Konráðsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir og Kjartan Már Kjartansson.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 258. fundar Stjórnar Reykjaneshafnar 09.12.2021

7. Fundargerð fræðsluráðs 10. desember 2021 (2021010005)

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Andri Örn Víðisson, Kjartan Már Kjartansson og Guðný Birna Guðmundsdóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 348. fundar fræðsluráðs 10. desember 2021

8. Fundargerð menningar- og atvinnuráðs 15. desember 2021 (2021010008)

Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Friðjón Einarsson.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 28. fundar menningar- og atvinnuráðs 15. desember 2021

9. Fundargerð framtíðarnefndar 15. desember 2021 (2021010004)

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Kolbrún Jóna Pétursdóttir, Ríkharður Ibsen, Kjartan Már Kjartansson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hanna Björg Konráðsdóttir og Díana Hilmarsdóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 26. fundar framtíðarnefndar 15. desember 2021

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:15