716. fundur

07.04.2026 17:00

716. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 7. apríl 2026 kl. 17:00

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson, Díana Hilmarsdóttir, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Helga María Finnbjörnsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Aðalheiður Hilmarsdóttir. Í forsæti var Guðný Birna Guðmundsdóttir.

Að auki sat fundinn Erna María Svavarsdóttir ritari.

Sigurrós Antonsdóttir boðaði forföll, Aðalheiður Hilmarsdóttir sat fyrir hana.

Bæjarstjórn samþykkir 11-0 að taka á dagskrá málið Fundargerð stjórnar eignasjóðs 26. mars 2026 (2026010015). Fjallað verður um málið undir dagskrárlið 8.

1. Fundargerðir bæjarráðs 19. og 26. mars og 1. apríl 2026 (2026010008)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar.

Til máls tók Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 1 frá fundargerð bæjarráðs 1. apríl 2026 - Frumkvæðisathugun á málavinnslu barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar við vistun barna utan heimilis (2026030114)

„Lögð var fram skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, unnin á grundvelli laga nr. 88/2021 um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála og laga nr. 80/2002 um barnavernd. Kjörnir oddvitar funduðu með Heru Ósk Einarsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs, mánudaginn 30. mars 2026, þar sem efni skýrslunnar var kynnt og farið yfir niðurstöður hennar.

Þegar hefur verið skipað úrbótateymi og vinna hafin við gerð úrbótaáætlunar sem bæjarráð leggur mikla áherslu á að verði unnin með markvissum hætti. Úrbótaáætlun skal lögð fyrir Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála eigi síðar en 29. apríl 2026. Stefnt er að því að innleiðingu úrbóta verði lokið fyrir árslok 2026. Bæjarráð og velferðarráð skulu upplýst reglubundið um framvindu málsins, í samræmi við góða stjórnsýsluhætti.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Aðalheiður Hilmarsdóttir Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.

Til máls tók Alexander Ragnarsson (D) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 1 frá fundargerð bæjarráðs 19. mars 2026 - Njarðarvellir 2 - Sala á húsnæði (2025040506)

„Sjálfstæðisflokkurinn er hlynntur því að seldur verður eldri hluti hjúkrunarheimilis Nesvalla. Sjálfstæðisflokkurinn telur skynsamlegt að áður en húsnæðið er sett á sölu verði gert verðmat á húsnæðinu með tilliti til þess leigusamnings sem nú er í gildi, ástands hússins, lán sem hvíla á húsinu og eignaskiptayfirlýsingar þannig að hægt sé að setja sér raunhæft markmið með það verð sem eðlilegt er að Reykjanesbær sætti sig við. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja því hjá.“

Margrét Sanders, Guðbergur Reynisson, Alexander Ragnarsson og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 1 frá fundargerð bæjarráðs 19. mars 2026 - Njarðarvellir 2 - Sala á húsnæði (2025040506)

„Þann 19. mars síðastliðinn tók meirihluti bæjarráðs ákvörðun um að auglýsa til sölu fasteignina að Njarðarvöllum 2, þar sem starfrækt er 60 rúma hjúkrunarheimili Nesvalla. Ekki er um að ræða nýja hjúkrunarheimilið sem opnaði fyrr á árinu. Ákveðið var að auglýsa eftir tilboði í eignina sem rennur út þann 15. apríl næstkomandi. Skýrt kemur fram í tilboðinu að seljandi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum tilboðum.

Ríkið hefur formlega tekið yfir rekstur hjúkrunarheimila í stað samstarfs við sveitarfélög áður. Nýja hjúkrunarheimilið hefur verið tekið yfir af ríkinu en rekstur þeirra beggja er í höndum Hrafnistu.

Að því sögðu þykir eðlilegt á þessum tímapunkti að sveitarfélagið auglýsi fasteignina að Njarðarvöllum 2 til sölu og dragi sig algerlega frá rekstri hússins sem hýsir hjúkrunarheimili.

Þó er það alveg skýrt að hér er verið að leita tilboða og við sjáum hvort að áhugi sé til staðar eður ei og munum síðar fara yfir þau tilboð sem berast.

Með tilboðinu fylgja upplýsingar um veðbandayfirlit á húsinu, fasteigna- og brunabótamat ásamt endurstofnsverði en eignin er 4.339 m².

Um söluna gilda lög nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Um söluna gilda ekki lög nr. 65/1993 um framkvæmd útboða.

Að mati meirihluta bæjarstjórnar er tilboðið skýrt og mat á húsinu einnig. Ítreka skal að rýnt verður í þau tilboð sem berast og sveitarfélagið hefur skýran rétt til að taka hæsta tilboði eða neita öllum tilboðum.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Aðalheiður Hilmarsdóttir Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.

Til máls tók Margrét A. Sanders (D) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 7 frá fundargerð bæjarráðs 1. apríl 2026 - Fundargerð stjórnar eignasjóðs Reykjanesbæjar 26. mars 2026 (2026010015)

„Á bæjarráðsfundi 1. apríl s.l. var kynnt samþykkt stjórnar eignasjóðs um að byggt verði stærra íþróttahús við Myllubakkaskóla en gert var ráð fyrir í upphaflegri áætlun. Stækkunin er alls 138 m² brúttó þar sem stækkaður er íþróttasalur og bætt við geymslu en fyrir breytingu var heildarstærð íþróttasals 720 m² brúttó. Í fundargerð eignasjóðs kemur fram að kostnaðurinn rúmast innan heildarfjárheimilda verkefnisins. Bæjarráð samþykkir 5-0 stækkunina og ítrekar að það feli ekki í sér kostnaðaraukningu við heildarverkefnið.

Sjálfstæðisflokkurinn óskar því eftir að fá skýringu á því hvernig það getur staðist að þessi mikla hlutfallslega stækkun feli ekki í sér kostnaðaraukningu við heildarverkefnið? Er verið að skera niður annars staðar í verkefninu á móti? Sjálfstæðisflokkurinn telur að þessi stækkun sé mikilvæg og samþykkir hana en leggur áherslu á að fylgst sé vel með kostnaði við allar framkvæmdir.

Sjálfstæðisflokkurinn óskar eftir svari á næsta bæjarstjórnarfundi“

Margrét Sanders, Guðbergur Reynisson, Alexander Ragnarsson og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki.

Til máls tók Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 7 frá fundargerð bæjarráðs 1. apríl 2026 - Fundargerð stjórnar eignasjóðs Reykjanesbæjar 26. mars 2026 (2026010015)

„Fyrir liggja þarfagreining og breytingatillaga vegna upprunalegrar hugmyndar um byggingu nýs íþróttahúss við Myllubakkaskóla sem stjórn eignasjóðs fékk á sinn fund til afgreiðslu. Í upphafi var gert ráð fyrir íþróttahúsi sem er sambærilegt og íþróttahúsið við Heiðarskóla en í umræðum í kjölfarið var talið eðlilegra að miða við stærð íþróttahússins við Akurskóla sem var byggt á teikningum Heiðarskóla með uppfærðum útfærslum m.a. á íþróttahúsinu. Breytingarnar snúa hvað helst að því að hafa rými fyrir áhorfendabekki svo hægt sé að nýta húsið með fjölbreyttum hætti. Tillagan um stækkun íþróttahússins við Myllubakkaskóla hefur ekki farið áður fyrir afgreiðslu bæjarráðs á fyrri stigum þar sem það þótti ekki tímabært en nú er sá tími kominn þar sem vinna við uppbyggingu íþróttahússins fer að hefjast.

Málið hefur verið unnið í samráði við skólastjórnendur, íþrótta- og tómstundafulltrúa, menntasvið, deildastjóra eignaumsýslu, hönnuði og verkefnastjóra verkefnisins.

Stækkunin rúmast innan heildarfjárheimilda verkefnisins og er því ekki kostnaðarauki.

Meirihluti bæjarstjórnar fagnar því að nú liggur fyrir ákvörðun um stærð íþróttahússins við Myllubakkaskóla sem mun ekki einungis nýtast í íþróttakennslu í skólanum heldur einnig með fjölbreyttum hætti fyrir íþrótta- og tómstundahreyfinguna í heild sinni.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Aðalheiður Hilmarsdóttir Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.

Til máls tók Guðbergur Reynisson (D) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 1 frá fundargerð bæjarráðs 26. mars 2026 - Umferðaröryggi 2026-2030 (2026020367)

„Sjálfstæðisflokkurinn fagnar því að loks sé farið af stað í aðgerðir.

Umferðaröryggisáætlun 2024 sýndi fram á mikla vankanta í umferðaröryggi í öllu bæjarfélaginu , og sérstaklega við Njarðarbrautina en líka við flest allar stofnanir og skóla þar sem börnin okkar ferðast um daglega.

Við fögnum þessari áætlun um smartlýsingar við gangbrautir en við viljum leggja til að þessari áætlun verði flýtt enn frekar.

Íbúar hafa þurft að bíða allt of lengi , samanber íbúa til dæmis í Ásahverfi, en aðgengi þeirra inn og út úr hverfinu hefur greinilega líka mikil áhrif á uppbyggingu Ásahverfis, þar eru í dag 40 lausar einbýlishúsalóðir sem segir okkur mikið.“

Margrét Sanders, Guðbergur Reynisson, Alexander Ragnarsson og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 1 frá fundargerð bæjarráðs 26. mars 2026 - Umferðaröryggi 2026-2030 (2026020367)

„Reykjanesbær er sveitarfélag í örri stækkun, það sjáum við öll. Með auknum vexti sjáum við einnig áskoranir eins og umferðaröryggismál sem er mjög mikilvægt að við leysum fyrir öryggi barna okkar, ungmenna og annarra gangandi vegfarenda.

Talsverð vinna hefur verið gerð í sveitarfélaginu tengt umferðaröryggi og greiningu þess hvað megi betur fara og hvar. Nú liggja þessi gögn fyrir og einnig aðgerðaáætlun frá umhverfis- og framkvæmdasviði um lausnir og hvar þær henti best.

Aðgerðaáætlun umferðaröryggis var tekin fyrir í bæjarráði þann 26. mars síðastliðinn. Í þeirri skýrslu eru tilgreindar þær aðgerðir sem þykja henta best á hverjum gatnamótum og við umferðarmannvirki til að bæta umferðaröryggi í Reykjanesbæ. Aðgerðunum var forgangsraðað eftir því hversu brýnt þótti að leysa þau á hverjum stað fyrir sig.

Niðurstöður skýrslunnar sýna að 11 staðsetningar eru metnar í brýnni þörf með kostnað upp á 15,7 milljónir tæpar sem átti að framkvæma á árunum 2026 og 2027. Var það mjög ánægjulegt að bæjarráð sameinaðist um þá ákvörðun að flýta 2027 framkvæmdunum yfir á árið í ár til að flýta fyrir þessum brýnu framkvæmdum. Einnig var tekin ákvörðun um að rýna sérstaklega í gatnamótin við Grænás til skammtímaaðgerða en bæjarstjórn hefur þegar tekið ákvörðun um að byggja undirgöng undir Grænásveginn.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Aðalheiður Hilmarsdóttir Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Margrét A. Sanders, Alexander Ragnarsson, Guðbergur Reynisson og Margrét Þórarinsdóttir sitja hjá í fyrsta máli frá fundargerð bæjarráðs 19. mars 2026 - Njarðarvellir 2 - Sala á húsnæði (2025040506). Fundargerðirnar samþykktar að öðru leyti 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 1556. fundar bæjarráðs  19. mars 2026

Fundargerð 1557. fundar bæjarráðs 26. mars 2026

Fundargerð 1558. fundar bæjarráðs 1. apríl 2026

2. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 20. mars 2026 (2026010016)

Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 20. mars til sérstakrar samþykktar:

Annað mál fundargerðarinnar Grenndargámar við Elliðavelli (2025050211) samþykkt 11-0 án umræðu.

Þriðja mál fundargerðarinnar Hafnargata 56 (2025100183) samþykkt 11-0 án umræðu.

Fjórða mál fundargerðarinnar Svæðisskipulag Suðurnesja (2019070283) samþykkt 11-0 án umræðu.

Fimmta mál fundargerðarinnar Fjölbrautaskóli Suðurnesja - breytt deiliskipulag (2019090479) samþykkt 11-0 án umræðu.

Níunda mál fundargerðarinnar Réttarvegur í Höfnum - tímabundin afnot af landi (2026030192) samþykkt 11-0 án umræðu.

Tíunda mál fundargerðarinnar Stakksbraut 9 - gistiheimild (2026030226) samþykkt 11-0

Til máls tóku Margrét A. Sanders, Róbert Jóhann Guðmundsson og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.

Forseti gerir fundarhlé kl. 17:44.

Fundur aftur settur kl. 17:51.

Til máls tóku Margrét A. Sanders og Guðný Birna Guðmundsdóttir.

Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Guðbergur Reynisson (D) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 7 frá fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 20. mars 2026 - Akademíureitur - breyting á aðalskipulagi (2025010481)

„Ekki virðist einhugur meðal okkar í bæjarstjórn um framkvæmdir við Akademíureitinn samanber fyrri bókanir okkar Sjálfstæðisflokks.

Sjálfstæðisflokkur leggur því til að frekari vinnu við Akademíureitinn verði frestað þangað til eftir kosningar“

Margrét Sanders, Guðbergur Reynisson, Alexander Ragnarsson og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki.

Til máls tók Helga María Finnbjörnsdóttir (Y) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 7 frá fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 20. mars 2026 - Akademíureitur - breyting á aðalskipulagi (2025010481)

„Meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar telur að tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna Akademíureitsins sé bæði nauðsynleg og tímabær til að tryggja eðlilega og markvissa þróun miðsvæðis Reykjanesbæjar. Svæðið er 8,1 hektari að stærð og heimilar núverandi aðalskipulag 100 íbúðir og um 50.300 fermetra byggingarmagn. Með breytingunni er lagt til að byggingarmagn aukist í 62.400 fermetra og að heimilaður íbúðafjöldi aukist í 220 íbúðir, sem skapar nauðsynlegt svigrúm fyrir fyrirhugaða uppbyggingu á Akademíureitnum og einnig mögulega á svæði við Nesvelli.

Með breytingunni er verið að fylgja skýrri stefnu gildandi aðalskipulags um þéttingu byggðar, eflingu bæjarbrags og uppbyggingu blandaðrar byggðar í hjarta bæjarins. Aukið byggingarmagn og fjölgun íbúða eru forsenda þess að miðsvæðið geti þróast sem lifandi og öflugt þjónustu- og íbúðasvæði sem þjónar þörfum bæjarbúa til framtíðar.

Meirihlutinn hafnar þeirri gagnrýni minnihluta að umferðarmannvirki og bílastæðamál standi þessari uppbyggingu í vegi. Eins og eðlilegt er í svona ferli, verða umferðarmál og bílastæðafjöldi útfærð nánar í deiliskipulagsvinnunni en þar eru áhrif á umferðamannvirki metin heildstætt og raunhæfar lausnir mótaðar. Gert er ráð fyrir bílastæðakjallara innan reitsins sem tryggir að bílastæðaþörf sé mætt án þess að skerða gæði almenningsrýma.

Meirihluti bæjarstjórnar telur því engin efnisleg rök standa gegn því að veita heimild til að auglýsa aðalskipulagsbreytinguna og tryggja að tillagan fari í lögbundið kynningar- og samráðsferli.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Aðalheiður Hilmarsdóttir Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.

Til máls tóku Alexander Ragnarsson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Guðný Birna Guðmundsdóttir.

Tillaga um að sjöunda máli, Akademíureitur - breyting á aðalskipulagi (2025010481), verði frestað fram yfir kosningar var felld með 7 atkvæðum gegn 4.

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Róbert Jóhann Guðmundsson.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Margrét A. Sanders, Alexander Ragnarsson, Guðbergur Reynisson og Margrét Þórarinsdóttir sitja hjá í sjöunda máli frá fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 20. mars 2026 - Akademíureitur - breyting á aðalskipulagi (2025010481). Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 385. fundar umhverfis- og skipulagsráðs 20. mars 2026

3. Fundargerð lýðheilsuráðs 17. mars 2026 (2026010011)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.

Til máls tók Margrét Þórarinsdóttir (D) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 1 frá fundargerð lýðheilsuráðs Reykjanesbæjar 17. mars 2026 - Tómstundamiðstöð - kynning (2026030173)

„Mikilvægt er að aðgreina skýrt umfjöllun um þjónustu við ungmenni annars vegar og sumarstörf 17 ára hins vegar, enda um ólíka málaflokka að ræða.

Þjónusta félagsmiðstöðva fellur undir velferðar- og forvarnarhlutverk sveitarfélagsins, en málefni sumarstarfa lúta að atvinnustefnu og vinnumarkaði. Jafnframt er mikilvægt að hafa í huga að aðgengi að atvinnu er í sjálfu sér stórt velferðarmál og grundvallarþáttur í þátttöku einstaklinga í samfélaginu.

Aukin eftirspurn eftir sumarstörfum fyrir 17 ára, m.a. vegna hærri aldursviðmiða á almennum vinnumarkaði, kallar á skýr viðbrögð af hálfu sveitarfélagsins.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að bregðast þurfi við þeirri þróun að 17 ára ungmenni eigi sífellt erfiðara með að komast inn á vinnumarkað. Það er bæði atvinnumál og velferðarmál að tryggja þessum hópi raunhæf tækifæri til atvinnu og að unnið verði að því án tafar.

Þessi málaflokkur þarf sjálfstæða og markvissa umfjöllun í viðeigandi farvegi, aðskildum frá félags- og tómstundastarfi.“

Margrét Sanders, Guðbergur Reynisson, Alexander Ragnarsson og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki.

Forseti gerir fundarhlé kl. 18:14.

Fundur aftur settur kl. 18:24.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 1 frá fundargerð lýðheilsuráðs Reykjanesbæjar 17. mars 2026 - Tómstundamiðstöð - kynning (2026030173)

„Meirihluti bæjarstjórnar tekur undir áhyggjur af stöðu atvinnumála í sveitarfélaginu og ekki síst hjá ungmennum undir 18 ára aldri.

Eðlilegt er að rýna málið nánar, þ.e. greina fjölda ungmenna án starfa í sumar, kostnað við störf þeirra og ráðningar hjá sveitarfélaginu.

Leggur meirihluti bæjarstjórnar til að málinu verði vísað til frekari vinnslu til bæjarráðs.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Aðalheiður Hilmarsdóttir Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.

Til máls tóku Margrét Þórarinsdóttir og Guðný Birna Guðmundsdóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 66. fundar lýðheilsuráðs 17. mars 2026

4. Fundargerð atvinnu- og hafnarráðs 19. mars 2026 (2026010009)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.

Til máls tóku Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Alexander Ragnarsson.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 1 frá fundargerð atvinnu- og hafnarráðs 19. mars 2026 - Ársreikningur Reykjaneshafnar 2025 (2026010368)

„Meirihluti bæjarstjórnar fagnar kröftugum og góðum ársreikningi Reykjaneshafnar fyrir árið 2025. Reykjaneshöfn er á góðri leið með hækkandi tekjum og fjölgun verkefna á komandi misserum.

Unnið var að ýmsum samningum og verkefnum hjá Reykjaneshöfn á árunum 2024 og 2025 og má þar helst nefna:

• Framkvæmdir hófust í Njarðvíkurhöfn vorið 2024 við dýpkun hafnar.

• Boðin var út uppbygging skjólvarnargarða í Njarðvíkurhöfn sem leggur grunninn að framtíðaraðstöðu Landhelgisgæslu Íslands.

• Samkomulag milli utanríkisráðuneytisins, Reykjaneshafnar og Reykjanesbæjar var undirritað í lok árs 2025 um uppbyggingu á 25 þúsund rúmmetra eldsneytisbirgðageymslu og 390 metra viðlegukanti í Helguvíkurhöfn.

• Undirritaður var samstarfssamningur við Nordic Port Group um markaðssetningu Keflavíkurhafnar sem áfangastaðar fyrir skemmtiferðaskip.

Helstu stærðir ársreikningsins eru eftirfarandi:

Rekstrartekjur Reykjaneshafnar voru 450 milljónir á árinu, rúmum 18% hærri en árið á undan.

Almennur rekstrarkostnaður hækkaði á árinu um 76 milljónir eða 46% sem má meðal annars rekja má til aukinna kaupa á orku og vatni fyrir viðskiptavini, aukinnar verktöku vegna tíðari skipakoma auk endurbóta og viðhalds á mannvirkjum hafnarinnar.

Heildarfjárfestingar ársins voru 210 milljónir, þar af var dýpkun Njarðvíkurhafnar fyrirferðarmest með 166 milljónir í fjárfestingarkostnað ársins 2025.

Hagnaður fyrir árið 2025 var 88.8 milljónir og hækkar um fimm milljónir milli ára. Óráðstafað eigið fé er jákvætt um 1.45 milljarða og hækkar um 169 milljónir milli ára. Hreint veltufé frá rekstri var 185 milljónir og handbært fé frá rekstri var 193,6 milljónir sem hækkar um 31,7 milljónir milli ára eða 19,5%.

Eignir hafnarinnar, samkvæmt efnahagsreikningi eru 2.7 milljarðar. Skuldir hækka um 20 milljónir milli ára.

EBITDA Reykjaneshafnar fyrir árið 2025 var 182 milljónir og rekstrarafgangur var 89 milljónir. Eiginfjárhlutfall er 53,6% og veltufjárhlutfall er 3,26 sem ber með sér mjög heilbrigðan rekstur.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Aðalheiður Hilmarsdóttir Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 306. fundar atvinnu- og hafnarráðs 19. mars 2026

5. Fundargerð sjálfbærniráðs 25. mars 2026 (2026010014)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.

Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir og Hjörtur Magnús Guðbjartsson.

Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir og bar upp tillögu um að fimmta máli, Samræmd flokkun starfsstöðva Reykjanesbæjar (2023110097), verði vísað til frekari umræðu hjá bæjarráði. Samþykkt 11-0.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 69. fundar sjálfbærniráðs 25. mars 2026

6. Fundargerð menningar- og þjónusturáðs 1. apríl 2026 (2026010012)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 74. fundar menningar- og þjónusturáðs 1. apríl 2026

7. Breyting á skipan fulltrúa í íþrótta- og tómstundaráði (2024010091)

Sindri Kristinn Ólafsson (S) fer út sem aðalmaður. Magnús Einþór Áskelsson (S) kemur inn sem aðalmaður og fer út sem varamaður. Sigurrós Antonsdóttir (S) verður varamaður.

8. Fundargerð stjórnar eignasjóðs 26. mars 2026 (2026010015)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.

Til máls tók Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 27. fundar stjórnar eignasjóðs 26. mars 2026

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:48.